Skinfaxi - 01.08.1973, Page 6
Gert var við hlið og vegir og gangstígar lag-
færðir.
skólans var svo búinn svefnstaður í stóru
tjaldi og eldhúsaðstaða fékkst með hag-
lega gerðum eldhúsvagni sem tekinn var
á leigu. Hreinlætisaðstaða var heldur
frumstæð, útisalemi og aðeins kalt vatn,
en auk þess var farið tvisvar til þrisvar
í Sundlaug Selfoss, þar sem vinnuskólinn
fékk hina bestu fyrirgreiðslu.
Viðfangsefnum nemenda var svo skipt
í þrjá megin þætti, þ. e. íþróttir, vinnu,
leiki og kvöldvökur. Aðstaða til íþrótta-
iðkana er nokkuð góð miðað við þarfir
slíkra námskeiða enda er víst óhætt að
fullyrða að íþróttimar voru vinsælasti
þátturinn á námskeiðunum, frjálsar í-
þróttir, knattspyrna, glíma. A kvöldin að
loknum vinnudegi var ýmist efnt til
kvöldvöku, farið í leiki utandyra eða
rennt fyrir silung í vatninu. Skógurinn
er hinn ákjósanlegasti til allskonar göngu-
ferða og leikja og fegurð hans og friðsæld
í kvöldkyrrðinni hafði mikil áhrif á alla
sem þama dvöldu.
Þá er ótalinn einn þátturinn í starfi skól-
ans en það er vinna nemenda í skóginum.
Helsta verkefnið var hreinsun kalkvista
og dauðra trjáa úr skóginum svo og
hreinsun rusls bæði úr skóginum vítt og
breitt, og einnig hreinsuðu nemendur til
í kringum þrastalund og á tjaldstæði
tvisvar til þrisvar í viku, þá fór ekki hjá
því að nemendur þyrftu að leggja tals-
verða vinnu í að lagfæra aðstöðu sjálfs
Þessi ungi verkamaður skólans gefur í engu
eftir þó að verkfærin séu í stærra lagi.
vinnuskólans enda var hér um hreint
brautryðjendastarf að ræða.
Nemendur greiddu mjög lágt gjald fyr-
ir dvöl sína í skólanum eða kr. 900,00 pr.
viku á móti 3.600,00 — 4.000,00 í venju-
legum unglingabúðum, mismuninn var
áætlað að vinna nemenda greiddi. í heild
má segja að þessi tilraun hafi heppnast
vonum framar, og þarna fékkst dvrmæt
reynsla til að byggja á varðandi frekari
starfsemi, ýmsir erfiðleikar eru jafnan á
6
SKINFAXI