Skinfaxi - 01.08.1973, Qupperneq 7
SKÁK OG
BRIDGE
þessi fréttapistill um skák og bridgelíf
hjá UMSS var tekinn saman af Herði
Ingimarssyni á sl. vori.
Skáklíf hefur verið með mesta móti í
Skagafirði á þessum síðast liðnum vetri.
Pyrsta meiriháttar keppnin fór fram 27.
vegi þeirra sem rvðja nýja braut, en þeir
eru einn liðurinn í því að gera slíkt starf
heillandi. Stjórnendur og starfsmenn
vinnuskólans voru hjónin Sigurður Geir-
dal og Ólafía Ragnarsdóttir.
Að' loknu dagsverki var oft gott að hvíla sig
* kinum sérkennilegu áhorfendapöllum við
'þróttavöllinn.
des. i Héðinsminni milli austan- og vest-
anvatna manna en hið kunna vatnsfall,
Héraðsvötn, hefur frá fornu fari verið sú
markalína sem dregin hefur verið er hér-
aðsbúar hafa skipt sér i flokka til keppni
og hafa hestamenn ekki hvað síst verið í
fararbroddi hvað það snertir. Telft var á
17 borðum og sigruðu vestanvatnamenn
með 11 v. gegn 6 v. Hin árlega sveitar-
keppni UMSS fór fram í aprílmánuði.
Keppt var um mjög veglegan farandgrip,
Riddarastyttuna, sem Asveit Umf. Tinda-
stóls hlaut með nokkrum yfirburðum
annað árið i röð. í öðru sæti varð sveit
frá UMF Glóðafeyki í Blönduhlið, B-sveit
Tindastóls hlaut þriðja sæti. Að lokinni
sveitakeppninni fór fram keppni um
hraðskákmeistaratitil UMSS. Um alllaiig-
an tíma hefur verið i umferð farandgrip-
ur sem engum hefur ennþá tekist að
vinna til eignar. Að þessu sinni sigraði
Jóhann Pétursson, Glæsibæ, með 10 v. og
hlaut farandgripinn í fyrsta sinn. í öðru
til þriðja sæti urðu Gunnlaugur Sigur-
björnsson og Hörður Ingimarsson báðir
með 9 v. 1. maí mættu tvær 20 manna
sveitir frá USVH og UMSS til leiks i Mið-
garði við Varmahlið. Áratugur er nú síð-
an að slík keppni hefur farið fram.
Keppnin var mjög jöfn og spennandi en
að lokum var ljóst orðið að Skagfirðingar
höfðu jafnari sveit á að skipa og sigruðu
þeir með 11,5 v., en Húnvetningar hlutu
8,5 v. Um páskana fór fram hraðkeppni í
þridge á vegum UMSS. Slík keppni er ný
af nálinni i Skagafirði. Alls tóku 11 sveit-
ir þátt i keppninni sem fram fór i Mið-
garði. Þótti keppni þessi takast hið bezta.
Sveit Gunnars Þórðarsonar Sauðárkróki,
sigraði, annað sæti hlaut sveit Baldurs
Bjartmars Varmahlíð og þriðja sæti sveit
Hjálmars Guðmundssonar Lýtingsstaða-
hreppi. Keppnisstjóri var Albert Sigurðs-
son Akureyri.
*®«
SKINFAXI
7