Skinfaxi - 01.08.1973, Side 9
— Jú, það er mikil gróska í frjálsum
íþróttum. Á héraðsmótinu voru 70—80
keppendur sem er nærri fjórum sinnum
meira en í fyrra. I frjálsíþróttum héldum
við líka aldursflokkamót fyrir pilta og
stúlkur allt niður í 10 ára aldur og jafn-
vel yngra, enda mikilvægt að glæða á-
huga þeirra yngstu. Efnin eru alls staðar
til, og Strandamenn eru t. d. hreyknir
af því að snjallasti kúluvarpari lands-
ins í dag, Hreinn Halldórsson, hóf sinn
íþróttaferil meðal ungs fólks þar í hérað-
inu.
— Eru ekki fleiri greinar íþrótta á
dagskrá?
— HSS var með í 3. deildar-keppn-
inni í knattspyrnu og var í Vestfjarðar-
riðli. Þetta er erfið og kostnaðarsöm
keppni vegna mikilla fjarlægða, og lið-
inu reyndist ókleift að Ijúka öllum leikj-
um sínum. Skíðaíþróttin átti löngum ítök
1 Strandamönnum, en því miður hefur
hún lagst niður að mestu núna.
Það er svo ekkert launungamál að mitt
persónulega álit er það að héraðssam-
hönd í strjálbýlu og fámennu héraði ættu
fyrst og fremst að leggja áherzlu á ein-
staklingsíþróttir, allra aðstæðna vegna.
— Hvernig er hin félagslega staða í
héraðinu?
— Því er ekki að neita að starf HSS
hefur verið með daufara móti um alllangt
skeið, bæði íþróttalega og félagslega en
þó sérstaklega í félagsmálum. En ég varð
fijótt var við góðan félagsanda og sam-
starfsvilja hjá fólki um allt héraðið. Við
ákváðum t. d. að efla áhugann á iðkun
og keppni í íþróttum með því að veita
verðlaun á mótunum, líka í aldursflokka-
keppninni. Slíkt kostar auðvitað stórfé,
en hér reyndust margir reiðubúnir til
hjálpar, einstaklingar og fyrirtæki. Milli
70 og 80 þúsund krónur voru lagðar fram
til verðlaunagripa. Þetta hefur mikla
félagslega þýðingu, ekki bara fyrir hið
unga íþróttafólk, heldur kostar það fél-
agslegt átak að safna fyrir slíkum verð-
launum. Þar lögðu margir fram gott starf
og sönnuðu samtakamáttinn.
— Verður þú með Strandamönnum
næsta sumar?
— Það er alsendis óráðið. En ég er
sannfærður um það, að ef haldið verður
áfram eins og í sumar, þá verður á næstu
tveimur árum hægt að byggja upp öflugt
íþrótta- og félagsstarf í héraðinu.
Félagsheimilið Laug-
arhóll í Bjarnarfirði
var vígt í fyrra og er
nýjasta félagsheimilið
á Ströndum. Hægt er
að iðka þar sumar
inniíþróttir.
SKINFAXI
9