Skinfaxi - 01.08.1973, Blaðsíða 17
íþróttaskóli
Sigurðar R. Guðmundssonar
Lýðskóladeild - nýjung 1 skólastarfinu
íþróttaskóli Sigurðar R. Guðmundsson-
ar starfaði í Leirárskóla í Borgarfirði í 6.
sinn í sumar, og var skólanum slitið 31.
júlí.
Haldin voru 8 námskeið fyrir börn á
aldrinum 9-15 ára á tímabilinu 4. júní-29.
júlí, og var þátttaka mjög góð. í þetta
sinn var starfrækt svokölluð lýðskóladeild
við skólann í fyrsta sinn, og er þetta at-
hyglisverð nýjung. 9 nemendur tóku þátt
1 því námi, 5 piltar og 4 stúlkur. Aðal-
kennari í bóklegum og verklegum íþrótt-
um var Leiv Sandven frá lýðháskólan-
um í Seljard. í skólaslitaræðu sinni sagði
Sigurður R. Guðmundsson m. a. eftirfar-
andi um starf lýðskóladeildarinnar:
Farið var yfir undirstöðunámskeið í
íþróttakennslu sem að innihaldi samsvar-
ar hinum norska A-kurs. Nemendur hafa
kennt alls 80 stundir hinar ýmsu grein-
ar íþrótta. Þeir tóku þátt í 8 daga nám-
skeiði á skíðum við Skíðaskólann í Kerl-
ingarfjöllum, og einnig unnu þeir að
undirbúningi og framkvæmd norrænnar
fimleikahátíðar og tóku þátt í fimleika-
námskeiðum þar. Farið var yfir félags-
málanámskeið Æskulýðsráðs ríkisins,
rætt um félagsstarf og spurningum svar-
að. Kennari var Sigurður R. Guðmunds-
son. Nemendur lýðskólans unnu að und-
irbúningi og skipulagningu á félagsstarfi
barna og unglinga og kenndu þeim að
afnaði tvær stundir á degi hverjum.
Fórst þeim það starf sérstaklega vel úr
hendi. Hafa verið mjög góð tengsl á milli
þeirra yngri og eldri og hafa báðir aðilar
virkilega haft gagn af og mikla ánægju.
Mundi ég ógjaman vilja missa þá aðsöðu
að hafa bömin og hina fullorðnu saman.
Sigurður R. Guð-
Wundsson skólastjóri
ásamt nemendum í
hinni nýju Iýðskóla-
deild íþróttaskólans.
SKINFAXI
17