Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1973, Page 19

Skinfaxi - 01.08.1973, Page 19
Þróttur, Neskaupstað, fimmtugur Sigurður G Björnsson, form. Þrfóttar. íþróttafélagið Þróttur í Neskaupstað á 50 ára afmæli á þessu ári. í tilefni þess- ara tímamóta hefur komið út myndar- legt afmælisrit Þróttar undir ritstjórn Gunnars Ólafssonar. Það voru 59 ungir menn í Neshreppi í Norðfirði sem stofnuðu Þrótt um mán- aðamótin júní-júli árið 1923. Aðalhvata- maðurinn og fyrsti formaður félagsins var Jónas Guðmundsson, þá barnakenn- ari á Norðfirði en síðar ráðuneytisstjóri. Eftir nokkura ára líflegt starf dofnaði yfir félaginu unz það var alveg líflaust 1928. En árið 1933 var félagið endurreist fyrir forgöngu Lúðvíks Jósepssonar, þá- verandi menntaskólanema en núverandi ráðherra, og var hann formaður félags- ins 1933-1939. Eins og önnur félög í ungmennafélags- hreyfingunni hefur Þróttur sinnt mörg- um öðrum viðfangsefnum en íþróttum, s. s. leiklist, margs konar skemmtana- haldi, söngstarfsemi, þjóðdönsum, skáld, byggingu félagsheimilis o. fl. Fimmtugsafmælisins var minnst með ýmsum hætti, m. a. komu handknattleiks- og knattspyrnuflokkar frá Færeyjum og kepptu við lið Þróttar. Gamlir Þróttarfélagar sem kepptu í knatt- 'Pyrnu á 45 ára afmæl- inu 1968. Myndin er úr 50 ára afmælisrit- inu. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.