Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1975, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.04.1975, Blaðsíða 5
IIIIIII lllll IIIIIIIIII11III llllll 11II11III11111IIIIIII llll IIIIIIIIIIIIIIII llll llll III lllllllll llllllll IIIHIII ■ Mll IIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII llllllllllllll III1111111111111111111/^ I FRÁ LANDSMÓTSNEFND ‘WllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMIIIIMIMIIIMIIIIIIIMIIIIIIIIMIMMIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIIMMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIl'' Landsmótsnefnd vill byrja á því að þakka þeim sem mætt hafa á kvnning- arfundum nefndarinnar, fvrir síðast. Kynningarfundimir vom nokkuð mis- jafnlega sóttir bæði af félagsleiðtogum og kennurum eins og búast mátti við. Hér ræður miklu um hvemig félagsfor- ystan á hverju svæði hefur staðið að áróðri. Landsmótsnefnd er mjög ánægð með þessa fundi. Þeir hafa gefið henni tæki- færi til þess að kynna undirbúning lands- mótsins. Fjölmargar fyrirspumir og á- bendingar hafa komið til nefndarinnar og vill hún sérstaklega þakka þær. Alls munu 100 félagsforystumenn og 42 kennarar eða leiðbeinendur auk um 50 nemendur skóla hafa verið með í kynn- ingu nefndarinnar og em þeir fulltrúar % ungmennafélaganna í landinu, og verðum við að telja það góðan árangur í fyrsta sinni sem slíkar áróðurs- og kynn- ingarferðir eru famar. Nóg um það. Nú spyrjið þið góðir fé- lagar — hvað hefur gerst síðan nefndin lét síðast heyra frá sér í Skinfaxa? Við stiklum á stóru og nefnum eftir- farandi: 1. Landsmótsnefnd hefur stofnað lands- mótsráð, sem í em um 30 einstakling- ar. Hver einstaklingur í ráðinu hefur ákveðið verkefni að framkvæma í sambandi við mótið. Þeir sjá um und- irbúning allan og framkvæmd á mót- inu. Fyrsti allsherjarfundur ráðsins var 9. mars í Gagnfræðaskóla Akra- ness, þar sem málin vom rædd og ráðsmenn kynntu sér þá starfsað- stöðu, sem þeir koma til með að vinna við. 2. I athugun er hve margir aðilar óska eftir annarri umferð yfir fimleika- prógrömin og eins hverjir óska eftir þjóðdanskennumm. í fimleikum mun hver sýningarflokkur sjá sér fyrir klæðnaði og má því búast við að hóp- sýningar verði æði skrautlegar. 3. Landsmótsnefnd vinnur nú að því að hafa samband við og halda fundi með ýmsum aðilum í tengslum við fjölþættan undirbúning og þjónnstu við bæði þátttakendur og gesti móts- ins. 4. Landsmótsnefnd birtir í þessu hefti Skinfaxa tímadagskrár mótsins og ýmsar hagnýtar upplýsingar. Landsmótsnefnd lítur björtum augum fram til mótsins, með ömggri vissu um að ungmennafélagar hvar sem er á land- inu standi einhuga saman að því að gera landsmótið okkar að veglegri hátíð sem býður uppá fjölþætta dagskrá sem fer fram með menningarbrag svo sem er stefna ungmennafélaganna er þau heita því að vinna ÍSLANDI ALLT. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.