Skinfaxi - 01.04.1975, Blaðsíða 15
LANDGRÆÐSLUSTARFIÐ:
Tvö hundruð lestum
af ábruði dreift
Fulltrúaráðsfundur Landvemdar var
haldinn að Hótel Esju í Reykjavík laug-
ardaginn 23. nóv. sl. og hófst með setn-
ingarræðu formanns Landverndar, Hák-
onar Guðmundssonar.
Á sl. sumri var mikið unnið að land-
græðslustörfum á vegum Landvemdar
og dreift 200 tonnum af áburði og 7 tonn-
um af fræi, þá var átak gert í friðun Þórs-
merkur og þar dreift áburði úr flugvél
til jiess að sbu’kja gróður.
Framkvæmdastjóri Landvemdar Hauk-
ur Hafstað vann allmikið að útbreiðslu-
og kynningarstarfi á sl. starfsári og mætti
hann á mörgum fundum í því skyni víðs-
vegar um land. Landvemd hefur nú gefið
út þrjú fræðslurit, og er það 4. að koma
út, en það fjallar um Votlendi á íslandi.
Unnið er að útgáfu litskuggamynda til
kynningar og kennslu, og fjallar fyrsti
mvndaflokkurinn um landgræðslu og
gróðurvemd, 33 myndir með prentuðum
skýringartexta.
Þá hafa plaköt Landvemdar þótt vel
heppnuð og víða verið uppi hátíðarárið
1974. Framkvæmdastjóri upplýsti að
framlög sýslu- og sveitarfélaga til land-
græðslu hefðu aukist talsvert á sl. ári,
og dæmi væri til þess að eitt sýslufélag
hefði greitt 200 þús. kr.
Vaxandi þátttaka er í melfræssöfnun,
og tekur skólafólk nú virkan þátt í þess-
um mjög svo nauðsynlega þætti land-
græðslustarfsins.
Á sl. vori var formlega gengið frá af-
hendingu jarðarinnar Alviðm í Olfusi,
sem gefin var Landvernd og Ámessýslu
á sl. ári.
Aðalmálefni fulltrúafundar Land-
verndar að þessu sinni var Landgræðslu-
áætlun 1974 til 1978, markmið hennar og
framkvæmd. Framsögumenn um þetta
málefni vom Jónas Jónsson og Stefán
Bergmann. Komu framsögumenn víða við
í sínum málflutningi, og var hlutverk
Jónasar einkum að skýra ýmsa fram-
kvæmdaþætti; hann er formaður þeirrar
nefndar sem sér um að áætlunin gangi
fram í samstarfi við framkvæmdaaðila,
Landgræðslu og skógrækt ríkisins, Land-
vernd, samtönk bænda o. fl. aðila. Stefán
Bergmann rakti áætlunina lið fyrir lið
og vakti upp ýmsar spumingar, sem
sköpuðu ánægjulegan umræðugmndvöll
um jiað með hverjum hætti við gætum
sem best nýtt jijóðargjöfina miklu sem
samjyykkt var með samhljóða atkvæðum
allra jn'ngmanna þjóðarinnar á sögufræg-
um fundi Aljnngis á Þingvelli sl. sumar.
Að lokum flutti formaður lokaorð og
hvatti alla liðsmenn Landvemdar til öfl-
ugrar þátttöku í starfi samtakanna.
H. Þ.
SKINFAXI
15