Skinfaxi - 01.04.1975, Qupperneq 17
LYFTINGAR
A
LANDSMÓTINU
Diðrik Haraldsson á Selfossi hefur
með að gera undirbúning sýningar í
lyftingum á næsta landsmóti. Að gefnu
tilefni sneri Skinfaxi sér til Diðriks og
innti hann eftir því hvemig undirbún-
ngurinn gengi.
— Iíann er tiltölulega stutt á veg
kominn, en verið er að kanna væntan-
Iega þátttöku, tækjakost og starfsmenn.
— Hvaðan fáið þið þátttakendur?
— Lyftingasamband íslands ritaði
aðildarsamböndunum bréf, þar sem
spurst er fyrir um iðkun lyftingaríþrótt-
arinnar innan hvers aðildarfélags fyrir
sig, en það hefur lítið komið út úr því
svo að erfitt er að segja til um það á
þessu stigi málsins. Þó vitum við um
þátttakendur frá HSK, UÍA og einnig á
ég von á þátttöku frá UMSS og USAH.
— Hvemig verða þátttakendur vald-
ir?
— Það verður valið í þyngdarflokka
eftir árangri?
— Hvemig fer sýningin fram á lands-
mótinu?
— Ég hef hugsað mér að kynna hana
með löglegu móti. Það er ekki ákveðið
hvort keppt verður bæði í kraftþraut og
tvíþraut.
— Hvað áætlar þú að verði margir
þátttakendur í lyftingum á Landsmót-
inu?
— Það er erfitt að segja fyrir um
Einn hinna heimsfrægu. Búlgarski olympíu-
meistarinn í millivigt, Jordan Bikov, lyfti
485 kg í þríþraut.
það á þessu stigi undirbúningsins, en við
höfum hugsað okkur að nýta þann tíma
sem okkur er ætlaður, samt. 2 klst., og
miðast þátttakendafjöldi svolítið við
það.
— Hvemig er aðstaðan til keppni á
Akranesi?
— Það verður keppt á palli undir
berum himni ef veður leyfir en annars
í íþróttahúsinu.
— Hvað líður öðrum undirbúningi?
— Það má segja það að undirbúning-
urinn í heild sé vel á veg kominn. Það
er verið að kanna þátttöku eins og ég
sagði áðan og svo útvegum tækja og
starfsmanna fyrir þessa grein mótsins.
SKINFAXI
17