Skinfaxi - 01.04.1975, Page 27
UNÞ
Á þingi Ungmennasambands NorSur-
Þingeyinga í fyrra kom fram að gera
þarf nýjan samning við Skógrækt rík-
isins um afnot af Ásbyrgi. Hinar árlegu
Ásbyrgissamkomur hafa jafnan verið
stærsta verkefni UNÞ og hafa skapað
fjármagn til starfseminnar á undanförn-
um árum. Formaður UNÞ, Aðalbjörn
Gunnlaugsson gat um þetta í skýrslu
stjórnarinnar. Níels á. Lund íþróttakenn-
ari var ráðinn framkvæmdastjóri UNÞ
frá 1. júni til 20. ágúst í fyrra.
Á ársþinginu voru tvö ungmennafélög
innan UNÞ sameinuð, ungmennafélagið
Neisti á Vestur-Sléttu og Ungmennafé-
lag Núpsveitunga, Núpasveit. Þessi fé-
lög tilheyra sama hreppi og hefur sam-
eining þeirra lengi staðið til. Hið nýja
félag heitir Snörtur, formaður þess er
Marinó Eggertsson, Brún, Kópaskeri.
Samþykkt var að koma á dómaranám-
skeiði í knattspyrnu, en dómaraskortur
gerir víða vart við sig.
Nokkrar deilur hafa staðið um þátt-
tökurétt á mótum UNÞ, var eftirfarandi
tillaga samþykkt i þvi efni:
Þátttökurétt á mótum UNÞ hafa:
1. Þeir sem hafa átt lögheimili á sam-
bandssvæðinu minnst einn mánuð
fyrir keppnisdag.
2. Þeir sem einu sinni hafa öðlast
keppnisrétt og keppt hafa fyrir félag
innan UNÞ, þangað til þeir keppa
fyrir annað félag í grenndinni og eru
enn fullgildir félagar í viðkomandi
félagi innan UNÞ.
3. Þeir sem tekið hafa þátt í unglinga-
keppni UNÞ í 3 ár eða sótt reglulega
æfingar í 4 ár á sambandssvæðinu.
Auk framangreinds þurfa þeir að
vera félagsbundnir á sambandssvæð-
inu, og mega ekki keppa fyrir annað
félag í viðkomandi grein.
íþróttadómstóll UNÞ sker úr um vafa-
atriði. Þessar reglur gilda um öll mót
UNÞ nema unglingakeppnina og ungl-
ingamót.
Var tillagan samþykkt samhljóða.
í kaffihlé þingsins ávarpaði Guð-
mundur Gíslason, Brynjar Halldórsson
fyrrverandi formann UNÞ nokkrum orð-
um. Var tilefnið að veita Brynjari starfs-
merki UMFÍ fyrir langa og giftudrjúga
starfsemi í þágu ungmennafélagshreyf-
ingarinnar.
Þingið var í heild árangursrikt og vel
heppnað.
Stjórn sambandsins skipa nú.
Aðalbjörn Gunnlaugsson, formaður,
Lundi, Guðmundur Þórarinsson, Gjald-
keri, Vogum, Stefán Eggertsson, ritari.
Laxárdal.
F élagsmálanámskeið
Stöðugt styttist í það að haldin hafi
verið félagsmálanámskeið hjá öllum hér-
aðssamböndunum.
Dagana 14.—16. mars ’75 var haldið
félagsmálanámskeið á vegum Ung-
mennasambands Norður-Þingeyinga og
Félagsmálaskólans.
Námskeiðið hófst að Lundi Axarfirði,
föstudaginn 14. mars kl. 20.30 stundvís-
lega með setningarorðum formanns U.
N. Þ. Aðalbjörns Gunnlaugssonar kenn-
ara að Lundi, sem kunnur er fyrir dugn-
að sinn og ósérhlífni í starfi sínu innan
hreyfingarinnar.
SKINFAXI
27