Skinfaxi - 01.04.1975, Blaðsíða 28
Flestir voru þátttakendurnir á fyrsta
degi námskeiðsins eða 35 talsins, en sam- Ungmennafél&g HveragerðÍS
tals sóttu námskeiðið 42 þátttakendur.
Þátttakendur námskeiðsins voru á Og, Olfus 40 ára
Þessi mynd er tekin af hópstarfi á félags-
málanámskciðinu, en kennslan fór fram í
íþróttasal gamla skólahússins í Lundi í Axar-
firði.
aldrinum frá 14 ára til 57 ára. 15 konur
og 27 karlar.
Vegna þess að flestir þátttakendurnir
voru bundnir bústörfum heima fyrir gat
námskeiðið ekki staðið í nema 15 klst,
sem er of stuttur tími fyrir jafn viða-
mikið efni sem Félagsmálanámskeið er.
Sumir þátttakendanna sóttu námskeið-
ið um langan veg m. a. frá Þórshöfn og
Kópaskeri.
Námskeið þetta er þá fyrst og fremst
kynning á námsefni ÆRR og Félags-
málaskóla UMFÍ. Vonandi halda N-Þing-
eyingar fleiri námskeið í sýslunni á
hausti komandi, en í héraðið vantar til-
finnanlega viðurkennda félagsmála-
kennara sem sinnt gætu þessum mikil-
væga þætti endurmenntunarinnar.
Fjórða til tólfta janúar sl. fiélt Ung-
mennafélag Hveragerðis og Ölfuss upp
á 40 ára afmæli sitt með fjölbreyttum
skemmtisamkomum.
Afmælishátíðin hófst með félagsvist
og gömlu dönsunum. Sunnudaginn 5.
janúar var kaffisamsæti í Hótel Hvera-
gerði. Formaður félagsins Ester Hjart-
ardóttir, setti samkomuna, en veislustjóri
var Valgerð Runólfsson, skólastjóri. Sam-
komugestir voru um 100, þ. á m. for-
maður UMFÍ, stjóm og framkvæmda-
stjóri HSK, hreppsnefnd Hveragerðis
auk fjölda eldri og yngri félaga og vel-
unnara félagsins. Mörg ávörp vom flutt
við þetta tækifæri, m. a. flutti F.ngilbert
Hannesson, hreppstjóri í Ölfushreppi
minningar liðinna tíma. Nokkrir eldri
félagar og velunnarar þess fengu viður-
kenningar fyrir vel unnin störf. Einnig
Eldri félagar sem heiðrað'ir voru á 40 ára af-
mæli UFHÖ ásamt formanni félagsins, Ester
Hjartardóttur, sem er lengst til vinstri.
28
SKINFAXI