Skinfaxi - 01.08.1980, Side 9
um og hafa börnin ekki fengið
íþróttakennslu síðastliðin 10 ár
fyrir utan einn vetur þar sem
kennt var í samkomuhúsi staðar-
ins. Sundlaug hefur verið í bygg-
ingu síðastliðin þrjú ár og er ekki
vitað hvenær byggingu hennar
lýkur, því dregið var úr Ijárfram-
lögum af hendi ríkisins, og jafn-
lítið sveitarfélag og hér er getur
ekki staðið undir slíkum kostnaði
eitt sér þó það sé allt af vilja gert.
Því hefur öll íþróttastarfsemi leg-
ið niðri fyrir utan borðtennis og
badminton sem spilað hel'ur verð
í samkomuhúsinu. En þó er loft-
hæð þar ekki nægjanleg til að
eðlilegt spil geti átt sér stað.
Iþróttafélagið tók þá ákvörðun í
vetur að reyna að fá hingað þjálf-
ara til að byggja upp íþróttastarf
á staðnum. Þannig að börnin
fengju almenna íþróttakynningu
og ekki hvað síst í þeim tilgangi
að efla hreyfigetu og almennan
líkarpsþroska þeirra, þar sem
þeirri hlið hefur ekki verið sinnt
undanfarin ár. Með því fengist
einnig leiðbeining á uppbygg-
ingu og örvun til félagsmanna. I
lok sumarsins hefur stjórn félags-
ins fullvissað sig um að með nám-
skeiði sem þessu er fengin undir-
staða til áframhaldandi íþrótta-
starfsemi.
Og er takmark stjórnar að öll
fjáröflun á komandi vetri beinist
að kaupum á íþróttaáhöldum og
launakostnaði þjálfara. En í-
þróttaáhöld hafa verið fá og að-
staða til geymslu léleg. Stjórn fél-
agsins ákvað að hafa námskeiðið
kostnaðarlaust fyrir þátttakend-
ur, þar sem þetta var frumraun,
og biðja foreldra frekar um sjálf-
boðavinnu til uppbyggingar á
íþróttaaðstöðu. Tókst sú vinna
framar vonum, þó mikið sé eftir.
En hálfnað er verk þá lialið er.
HVERNIC ER HÁTTAÐ
SAMSTARFI VIÐ HVÍ?
Því fjölbreyttara sem starlið er
3 og 10 ára.
13 oq 14 ára.
Meo á myndunum er Sleinunn GucSnadótíir leicSbeinandi á íþrótíanámskeitSunum.
SKINFAXI
9
M j