Skinfaxi - 01.08.1980, Qupperneq 11
NÝ SÝSLUMET í SUNDI
Á héraðsmóti USAH í sundi 23.
júlí sl. voru sett 5 ný sýslumet. Val-
geir Valgeirsson setti sýslumet í 50
m skriðsundi (28,8 sek.) og 50 m
baksundi (35,7 sek.). Ingibjörg
Orlygsdóttir setti sýslumet í 50 m
baksundi (41,0 sek.) og boðsunds-
sveitir umf. Hvatar á Blönduósi
settu einnig ný sýslumet í 4X50 m
frj. aðferð (karlafl. 2,07.4 m og
kvennall. 2,43.5 mín.) Umf. Hvöt
á Blönduósi vann yfirburðasigur á
|)essu móti, hlaut alls 164 stig en
þeir sem næstir komu hlutu 25,5
stig.
Þennan góða árangur umf.
Hxatar á Blönduósi má vafalítið
þakka auknum áhuga og skilningi
á gildi sundíþróttarinnar, bæði
heilsufarslega og þjállfræðilega
séð.
A Blönduósi er sundlaugin opin
allt árið og því er mögulciki til
reglulegra æfmga fýrir félagsmenn
Hvatar. Hin ungmennafélögin í
sýslunni búa hins vegar við mun
erfiðari aðstöðu. A Skagaströnd er
stmdlaugin aðeins opin 1 til 2 mán-
ttði á ári og inn tii sveita eru það
bæði miklar vegalcngdirogóreglu-
legur vinnutími bænda á sumrin
sem valda þessum aðstöðumun.
Karl Lúðvíkssoh.
Urtglingomóí USBH í sundi
Skinfaxa hefur borist úrslit í unglingamóti USAH i sundi 13 ára og
yngri, em haldið var á Blönduósi 20. júlí s.l.
PILTAR
25 m bringusund Baldur Benediktsson F. '67 Umf. Hvöt 23.2 sek.
25 m baksund Guðm. S. Ragnarsson F. '69 Umf. Hvöt 23.1 sek.
25 m skriðsund Guðm. S. Ragnarsson F. ’69 Umf. Hvöt 20.3 sek.
50 m bringusund 4x25 m boðsund Baldur Benediktsson F. ’67 Umf. Hvöt 52.7 sek.
frjáls aðferð A.-sveit Umf. Hvatar 1:32.5 mín
STÚLKUR 25 m bringusund Ebba Húnfjorð F. ’67 Umf. Hvöt 21.8 sek.
25 m baksund Soffía Pétursdóttir F. ’67 Umf. Geislum 23.3 sek.
25 m skriðsund Ebba Húnfjörð F. ’67 Umf. Hvöt 17.8 sek.
50 m bringusund 4x25 m boðsund Ebba Húnfjörð F. ’67 Umf. Hvöt 51,4 sek.
frjáls aðferð Sveit Umf. Hvatar 1:47,0 mín
StígQhaestu einstoklingar
STULKUR
1. Ebba Húnfjörð Hvöt 24,5 stig
2. Soffía Pétursdóttir Geislum 22,25 stig
3. Helga Aradóttir Hvöt 9,5 stig
PILTAR
1. Baldur Benediktsson Hvöt 22.5 stig
2. Guðm. S. Ragnarsson Hvöt 19.0 stig
3. Amfinnur Arason Hvöt 16.25 stig
ÚfíSLtT
f-jöldi keppenda
Félag Stúlknagreinar Piltagreinar Stigafjöldi alls Stúlkur Piltar Alls
Umf. Hvöt 44 stig 84 stig 128 6 12 18
Urnf. Geislar 38 stig 11 stig 49 4 5 9
Umf. Fram 7 stig Ostig 7 1 1 2
Frá Félcujsmálaslcóla UMFl
Seinni liluta september gengst ielagsmálaskólinn ivrir nám-
skeiði serrt ætlað er gjaldkerum eða íjárhaldsmönnum Ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Xámskeiðið \erður að öllum lík-
indum haldið í Reykjaxík. Þeir sem sýna máli þessu áhuga
xánsamlega haíið samband við skrií'stofu UMFÍ.
SKINFAXI