Skinfaxi - 01.08.1980, Blaðsíða 12
I
UMFÍ ERLEND SAMSKIPTI NSU
Það er orðinn árlegur viðburður í
starfi NSU, samtökum ungmenna-
félaga á Norðurlöndum, að
standa fyrir samnorrænni ung-
mennaviku. Hún var að þessu
sinni haldin í Noregi í Lýðháskól-
anum Sund í Norður Þrændalög-
um um 100 km norðan við Þránd-
heim. Þátttakendurá þessum ung-
mennavikum er ungt fólk frá öllum
Norðurlöndum auk hópsins frá
danska minnihlutahópnum í Suð-
ur Slésvík. Þátttakendur að þessu
sinni voru um 90.
Eins og í fyrri skiptin létu ung-
mennafélagar frá íslandi sig ekki
vanta, þeir voru 11 og þar með
talinn fararstjórinn, Aðalsteinn
Pálsson.
Daginn fyrir brottfor hópsins var
honum stefnt á skrifstofu UMFÍ,
þar var lagt á ráðin um skemmti-
atriði og annað slíkt sem hópurinn
þurfti að hafa á hreinu fyrir utan-
Norrcena ung-
mennavikan ^ _
1380
ferðina. Auðséð var að mikill ferða
ahugur var kominn í mannskap-
inn. Og út var haldið að morgni
25. júlí, komið til Osló um hádegið
og þessum fyrsta degi eytt í að
skoða miðbæinn. Um kvöldið var
haldið til Þrándheims með nætur-
lest, og áttu ýmsir ansi erfitt með
að sofna í hristingnum og hávað-
anum.
Til Þrándheims var komið árla
morguns, komið sér fyrir á hóteli
og bærinn síðan skoðaður. Þarna
er hin glæsilega Niðarós-dóm-
kirkja og þótti mönnum mikið til
hennar koma. Við hrepptum sól og
mikinn hita um og yfir 30°C svo til
alla dagana sem við dvöldum ytra.
Það var því mjög vinsælt að liggja
á baðströndinni í Þrándheimi en
hún var á lítilli eyju rétt úti á firð-
inum og var farið á milli með ferju.
En við vorum að fara á norræna
ungmennaviku og því stigið upp í
lest seinnipart sunnudags 27. júlí
og haldið á áfangastað. 'I'il Lýðhá-
skólans Sund var komið um kvöld-
ið og byrjað á því að fá sér að borða
koma sér fyrir og skoða staðinn.
Aðstaðan er mjög góð í skólanum.
Góð heimavist er á staðnum, stór
i eitt skipti
fy rir öll
Þú mokar yfir frárennslislögnina og
vonar svo að hún endist um aldur og
ævi.
Aldrei þurfir þú að brjóta upp gólf og
grafa í grunninn undir húsinu. Aldrei
að rífa upp gróður og gangstéttir.
Hafir þú notað PVC grunnaplaströrin
frá Hampiðjunni og fyigt leiðbein-
ingum upplýsingabæklings okkar
þá eru allar líkur á að von þín rætist.
Rörin þola öli þau efni (sýrur og
basa), sem eru í jarðvegi.
Samsetningin (með gúmmíhring) er
einföld, fljótunnin og algjörlega þétt.
Margar lengdir, allt að 5 m.
Slétt yfirborð innan í rörunum veldur
litlu rennslisviðnámi.
Rörin eru létt og auðveld í meðförum.
PVC grunnaplastið endist og endist.
Það fæst í byggingavöruverslunum
um land allt.
HAMPIOJAN HF
12
SKINFAXI