Skinfaxi - 01.08.1980, Síða 18
Iþróltu- og
félagsstarfið í tölum
Skinfaxa haf’a borist niðurstöður
útreikninga úr ársskýrsium ung-
menna- og íþróttafelaga í landinu
f'yrir árið 1979. Þar sem ekki þótti
lært að birta plaggið í lieild, verður
revnt að gera skránni skil með því
að grípa niður hér og þar.
Kennoro- 09 kennslustundofjöldi
Fjöldi kennara í ungmenna- og
íþróttaf'élögunum yfir allt landið
v'ar samanlagt 2178 fyrir síðastlið-
ið ár. Þar af voru 1145 kennarar á
vegum sambandsaðila UMFÍ.
1 'nnin dagsverk við kennslu voru
á landinu öllu 41.200. Þar af'voru
17.268 dagsverk sem laun voru
greidd fyrir en þau sem ekkert var
greitt fyrir voru 24.152 og þar af
10.634 hjá aðildarfelögum UMFÍ.
Ulutur aðildarf'élaga UMF’Í þar
sem laun voru greidd fyrir kennslu
voru 6.241 dagsverk.
Fjöldi unninna dagsverka fer
hækkandi með hvejru árinu sem
líður. Sem dæmi má taka að á sein-
ustu 8 árum hefur þeim fjölgað um
meir en helming eða úr 20.604 árið
1972 í 41.420 fyrir síðastliðið ár.
Þessi fjölgun, unninna dagsverka,
er í réttu hlutfalli við fjölgun iðk-
enda á þessum árum. Launa-
greiðslur til kennara á öllu landinu
námualls 301.593.670 kr.
Fjöldi kennara hjá héraðssam-
böndum UMFl er mjög breytileg-
ur. HSK og félög þess eru með
flesta kennara 172 að tölu. Næstir
koma kennarar á svæði UMSK en
þeir eru 160.
Af héraðssamböndum UMFI er
UMSK svæðið langhæst þegar lit-
ið er á keypta kennslu en þeir
borga rúmar 39 milljónir. Þá koma
HSÞ ogUÍA með um 11,5 milljón-
ir hvort samband. Lægstir eru
USVS menn með rúm 600 þúsund
í kennaralaun og HSS, Stranda-
menn, sem greiða engin kennara-
laun.
Hlutfall milli fjölda kennara og
gefmnar og keyptrar kennslu er
sem hér segir ef tekin eru nokkur
dæmi:
Samb. Fj. kennara Gefin kennsla Keypt kennsla
UMSK 160 1648 dagsv. 2188 dagsv.
HSH 33 335 — 155 —
HHF 12 149 — 89 —
HSS 34 299 — 0 —
USAH 53 828 — 195 —
UMSE 65 580 — 382 —
UÍA 130 761 — 603 —
USVS 48 428 — 44 —
HSK 172 1663 — 291 —
Iðkendofjöldi í íþróttum
Fjöldi þeirra sem leggja stund á
íþróttir hefur vaxið hröðum skref-
um á seinustu árum. Sem dæmi
um þróunina skulum við taka
nokkur dæmi: Iðkendafjöldi 1972:
37.516, 1975: 54.451, 1978: 65.652
og 1979: 73.302. Meðþví aðlíta á
þessar tölur sést að iðkendafjöld-
inn hefúr nær tvöfaldast frá 1971.
A þessum níu árum er fjölgunin á
milli ára aðmeðaltali um 4.400 iðk-
endur. Fjölgunin hefúr verðið með
mesta móti á árunum 1978 til 1979
því þá bætast við 7650 iðkendur.
SKINFAXI