Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1982, Qupperneq 10

Skinfaxi - 01.06.1982, Qupperneq 10
Pálmi Gíslason formaður UMFÍ flytur ávarp áður en lagt er af stað. efninu Eflum íslenskt staðið. Þó best hjá þeim samböndum sem mættu á framkvæmdastjóranám- skeiðið. Aftur á móti ef meta á árangur verkefnisins þá getur það reynst erfitt. Frá mér séð þá tel ég að mistekist hafi að fá ísl. fram- leiðslu fyrirtæki til að notfæra sér þessa kynningarherferð. Þegar lit- ið er til baka þá eru þau teljandi á fingrum annarar handar þau fyrir- tæki sem tóku það upp án utan að komandi þrýstings að auglýsa sig og sína framleiðslu þá daga sem verkefnið stóð yfir. I þá 17 daga sem verkefnið stóð yfir þagði verkalýðshreyfmgin þunnu hljóði, sennilega of upptekin við að undirbúa næstu kjaraskerðing- ar samninga, þó svo að vitað sé að fáum hagsmunahópum í þjóðfé- laginu hafi þetta verkefni komið að jafn miklum notum og ísl. verkafólki. Hvað ungmennafé- lagshreyíinguna snertir þá held ég að fá verkefni hafi getað vakið jafn mikla athygli á hreyfingunni og þetta og sýnir glöggt í hversu ná- inni snertingu hún er við fólkið í landinu og gang þjóðmála al- mennt. Fjármögnun verkefnisins Þegar hugmynd þessa verkefnis var rædd í stjórn UMFI voru allir sammála um að þetta verkefni skyldi ekki verða íjáröflunar verk- efni fyrir UMFI. Það var líka ljóst að það átti ekki að ganga á sjóði samtakanna með þessu verkefni, því þurfti að leita út fyrir samtök- Hér setur Sigurður Geirdal fram- kvæmdastj. UMFÍ hjólreiðamennina af stað frá Lækjartorgi nákvæmlega kl. 18.00. Eins og lesa má úr svip fram- kvæmdastjórans, þá bíður hann spennt- ur eftir að taka á móti hjólreiðamönn- unum að 17 dögum liðnum. Víglundur Þorsteinsson formaður FÍI flytur ávarp við upphaf hjólreiðarferð- arinnar á Lækjartorgi. in um fjárstuðning við verkefnið. Þar var um tvær leiðir að ræða, að leita til hinna ýmsu hagsmuna- aðila sem tengdust ísl. fram- leiðslu, eða að láta bjóða í auglýs- ingaréttinn á verkefninu. Meðþví var hætta á að áhrifamáttur verk- efnisins sem heildar verkefnis ísl. framleiðslu heíði verið fyrir borð borinn. Því var sú leið valin að leita til hagsmunaaðila um Qárstuðning. Þeir aðilar sem styrktu verkefnið með verulegum fjárframlögum voru Samband ísl. samvinnufé- laga, Félag íslenskra iðnrekenda, Iðnaðarráðuneytið, Iðnrekstrar- sjóður og Fálkinn auk fjölda ann- arra fyrirtækja. Þrátt fyrir það er núna ljóst að framlag UMFÍ til þessa verkcfnis verður mun meira en áætlað var í upphafi. Finnur Ingólfsson. 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.