Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 18
Frá Félagsmálaskólanum
Starfsemi Félagsmálaskóla
UMFI hefur varið með svipuðu
sniði í vetur og verið hefur
undanfarin ár. Skipan skóla-
nefndar breyttist nokkuð s.l.
haust eins og fram hefur komið
í blaðinu.
Nepidina skipa nú:
Eyjólfur Ámi Rafnsson,
Helgi Gunnarsson og
Skúli Oddson.
Helstu verkefni nefndarinnar
hafa verið að sinna beiðnum
um námskeið víða um land.
Einnig hefur verið komið á
allmörgum félagsmálanám-
skeiðum að frumkvæði nefnd-
arinnar, en reynslan sýnir að oft
á tíðum er brýn þörf fyrir fél-
agsmálafræðslu á þeim
svæðum sem ekki leita til
skólans að fyrra bragði. Þess
vegna hlýtur útbreiðslustarf að
vera hluti af skólastarfinu svo
að skólinn starfi sem víðast um
landið. Það er álit nefndarinnar
að meiri áherslu þurfi að leggja
á útbreiðslu og kynningu
skólans.
Sem liður í þessu er aukin
fjölbreytni í námskeiðum og
endurskoðun námsefnis. Sem
kunnugt er hefur mappa I verið
gefin út endurskoðuð og um-
skrifuð. Nokkuð hefur einnig
verið unnið að endurskoðun á
möppu II og gerð nýs náms-
efnis. Virðist reynslan vera sú
með möppu II að efni hvers
kafla þarf því að endurskoða
með hliðsjón af þessu og er það
nokkuð vel á veg komið með
kaflann um störf gjaldkera og
útgáfustarfsemi.
Ljóst er að aukin sérhæfing
námskeiðanna kallar á aukna
sérhæfingu kennara skólans og
hefur komið upp sú hugmynd
að halda sérstök kennaranám-
skeið fyrir hverja tegund nám-
skeiðs og fá á þau færustu menn
frá hverjum sambandsaðila
UMFÍ. Kennaranámskeið þessi
yrðu þá haldin um leið og
endurskoðað eða nýtt námsefni
í hverri grein liti dagsins ljós.
Sem dæmi um nýtt námskeið
viljum við nefna námskeið í
skipulagningu og stjómun
íþróttamóta. Unnið er að gerð
námsefnis fyrir þessi nám-
skeið, en talsverð þörf er fyrir
þau ef marka má þann áhuga
sem fram hefur komið.
Loks fer hér á eftir greinar-
gerð um þau námskeið sem
haldin hafa verið á vegum
Félagsmálaskóla UMFÍ á yfir-
standandi skólaári.
F.h. skólanefndar
Helgi Gunnarsson.
18
SKINFAXI