Skinfaxi - 01.04.1983, Page 20
UNGMENNAFÉLAGIÐ BREIÐABLIK
ISLANDSMEISTARI f INNANHÚSSKNATTSPYRNU
annað árið í röð.
Jón Ingi Ragnarsson.
Við ræddum stuttlega við Jón
Inga Ragnarsson, formann
Knattspymudeildar UBK, í til-
efni þess að Umf. Breiðablik
varð Islandsmeistari í innan-
hússknattspymu karla annað
árið í röð.
Við spurðum Jón Inga fyrst að
því hvemig hefði gengið í
mótinu.
Mótið var haldið í Laugar-
dalshöll í byrjun mars og stóð
yfir í fjóra daga. Alls tóku 64 lið
þátt í mótinu í fjómm deildum.
Breiðablik leikur að sjálfsögðu í
1. deild, eða í A-flokki eins og
það er kallað. Liðið sigraði í
öllum sínum leikjum. Urslita-
leikinn lék .liðið við Þrótt í
Reykjavík og lauk honum með
8:6 eftir framlengingu. Þjálfari
liðsins í ár er Magnús Jónatans-
son.
fón Ingi var síðan spurður að
því hvemig hafi gengið hjá
stúlkunum í innanhússkhatt-
spymunni.
Islandsmeistaramótið í inn-
anhússknattspymu kvenna fór
fram í byrjun febrúar. Þar
sigraði Breiðablik í öllum
leikjum þar til kom að úrslita-
leiknum. Þá léku þær við ÍA
stúlkumar og töpuðu fyrir þeim
og urðu þar með að láta sér
nægja annað sætið. Breiða-
bliksliðið hefur borið höfuð og
herðar yfir önnur kvennaknatt-
spymulið á undanfömum
árum, en nú er kvennaknatt-
spyman á uppleið hjá mörgum
félögum og er ánægjulegt til
þess að vita. Þjálfari Breiða-
bliksstúlknanna er Róbert
Jónsson, sem mörg undanfarin
ár hefur þjálfað marga yngri
flokka Valsmanna og náð mjög
góðum árangri.
Hvemig gengur starfið í yngrt
flokkunum?
Breiðablik varð íslands-
meistari í 2. flokki drengja á
síðastliðnu ári. Auðséð er á því
að félagið er ekki á flæðiskeri
statt með menn til að taka við í
meistaraflokki á komandi
ámm.
Þjálfari liðsins í fyrra var
Sigurður Þorsteinsson og vil ég
þakka honum fyrir hans góða
starf. Við hans starfi tók
Guðmundur Helgason.
'vn r e
* !ií( ^ IjJ fl ^ ^ /
ÍSLANDSMEISTARAR 1982
2. FLOKKUR BREIÐABLIK
20
SKINFAXI