Skinfaxi - 01.04.1983, Blaðsíða 23
Fræðslu- og kynnisferð nemenda
á íþróttabraut
við Alþýðuskólann á Eiðum.
Nýlega voru nemendur á
íþróttabraut í Eiðaskóla t
heimsókn hér í höfuðborginni
1 fylgd með kennara sínum
Hermanni Níelssyni.
Skinfaxi notaði tækifærið og
ræddi stuttlega við tvo
nemenduma.
Bjarni Kristjánsson á heima á
Eiðum. Hann er 17 ára og hóf
nám á íþróttabrautinni nú um
áramótin. Bjarni er félagi í
Samvirkjafélagi Eiðaþinghár.
Hann stundar mest boitaíþrótt-
ir og er uppáhaldsgreinin hjá
honum körfuknattleikur.
Bjarna finnst námsefnið sem
boðið er upp á áhugavert og
höfða mikið til hans. Námið
gefur góða starfsmöguleika við
þjálfun og leiðbeinendastörf
hjá félögunum.
Bjarni hefur mikinn áhuga á
tónlist og leikur á hljóðfæri og
þó aðallega gítar.
Sigurbjörn Hjaltason, Djúpa-
vogi er 17 ára og hóf nám á
íþróttabrautinni í haust. Hann
er félagi í Umf. Neista. Sigur-
björn hefur mestan áhuga á
knattspyrnu og körfuknattleik.
Sigurbjörn segist hafa valið
þessa braut vegna þess að
námsefnið höfðaði til hans og
sagði að gaman væri þegar fram
í sækti að geta miðlað öðrum af
þekkingu sinni. Hann sagði
þetta einnig vera gott tækifæri
hl að þjálfa sjálfan sig í
íþróttum. Sigurbirni líkar
námið mjög vel og segir hann
að það sé svipað og hann hafi
gert sér vonir um, enda höfum
við mjög góðan kennara þar
sem Hermann Níelsson er. Ég
er ákveðinn í því að Ijúka þessu
tveggja vetra námi, sem ég er
byrjaður á og bæti ef til vill við
öðrum tveim vetrum og lýk
stúdentsprófi, en þá verð ég að
skipta um skóla sagði Sigur-
björn.
Aðspurður um fræðslu- og
kynnisferðina hingað suður
sagði Sigurbjörn að hún hafi
bæði verið ánægjuleg og
fræðandi.
SKINFAXI
23