Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 3
SKINFAXI
3. tbl. - 74. árg. -1983
ÁSKRIFTARVERÐ:
200 kr. árgangurinn.
LAUSASÖLUVERÐ:
35 kr. eintakið.
ÚTGEFANDI:
Ungmennajélag Islands.
RITSTJÓRI:
Ingólfur A. Steindórsson.
RITNEFND:
Jón G. Gubbjörnsson,
Bergur Torjason,
Guðjón Ingimundarson.
AFGREIÐSLA SKINFAXA:
Skrifstoja UMFÍ
Mjölnisholti 14, Reykjavík.
Sími 14317.
UMBROT OG FILMUGERÐ
Prentþjónustan hj.
SETNING OG PRENTUN:
Prentsmiðjan Rún sj.
MEÐAL EFNIS:
Fréttir a£ þingum ................ 4
Oflugt starf hjá Umf. Armanni ... 13
Sundbikarinn á Hvammstanga
afhentur í fyrsta skipti ........ 15
Framkvæmdastjórar
héraðssambanda kynntir ........... 16
Nýir formenn ..................... 19
Heimsókn í íþróttakennara-
skólann á Laugarvatni ........... 21
Svava Amórsdóttir,
framkvæmdastjóri USÚ
tekin tali ....................... 24
Framkvæmdastjóranámskeið
UMFÍ ............................. 25
Vísnaþáttur Skinfaxa ............ 27
Húnavaka ......................... 28
Skólamót USÚ og USVS.............. 30
FORSÍ ÐUM YNDIN:
Forsíðumyndin er lekin í Prastaskógi með
Ingólfsjjall í tjakgrunni
Myniina tók Gunnar Kristjánsson.
Guðjón
Ingimundarson
*
I
tímans rás
Liðið afmælisár og hækkandi sól vekur til umhugsunar um tímann,
þennan tíma, sem sífellt kemur og fer jafnharðan og víkur fyrir nýjum tíma,
tíma augnabliksins.
Ekki er mögulegt að endurheimta tímann, lifa hann upp aftur og bæta um
fyrri gerðir. Hann er eins og árstraumurinn, sem hverfur til hafsins, í
ómælisdjúpið og kemur aldrei til baka.
Eg minni á þetta til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að nota líðandi
augnablik vel og rétt, til uppbyggingar, en ekki til niöurrifs.
Bömunum finnst tafsamt að verða stór og bxða með óþreyju þeirrar
stundar. Hinum fullvaxta veitist oft of stuttur tími til þess að koma
hugmyndum sínum og hugðarefnum í höfn. Þannig reynist tíminn oft
styttri til starfa en ætlað var. Þannig er mannsævin eins og eitt augnablik í
tímans rás.
Nú eru sumarannir framundan, raunar löngu byrjaðar, starf og leikur,
athafnir til eigin afkomu og þjóðarbúsins, þroskandi leikir og keppni.
Enginn leikur, engin keppni er fullkomin nema leikin sé af fullri alvöru, en
þó drenglund. Það á leikurinn sammerkt með störfum í þjóðfélaginu. Þess
vegna er leikurinn og keppnin slíkur þroskavegur til alvarlegra starfa sem
raun er á.
Ungmennafélagar hafa í mörgu að snúast um þessar mundir, uppbygg-
ingu félagslífs, æfingum til þátttöku í íþróttamótum, þar meðtöldu Lands-
móti næsta árs, auk þess sem þeir glíma við vandamál þjóðfélagsins eins og
aðrir þegnar þess. Þeim ber að halda áfram þeirri viðleitni sem fólst í
afmælisverkefninu í fyrra, eflum íslenskt, og það í margvíslegum skilningi,
ekki eingöngu með orðum, heldur einnig athöfnum. Þetta er þjóðar-
nauðsyn.
Ungmennafélagshreyfingin er ekki byltingarstefna. Hún var og er sam-
viska samferðamanna til þeirra strauma, sem um þjóðfélagið leika og þarf að
hafa áhrif til stefnumörkunar. Þetta hefur hún gert um áratugi, um það eru
fjölmörg og nærtæk dæmi. Þetta þarf hún enn að gera, bæði í nútíð og
framtíð.
I kvæði sínu Vormenn, tileinkuðu ungmennafélögum Islands, hvetur
skáldið Guðmundur Guðmundsson til þess að fáninn verði aldrei látinn
falla, merkinu verði ætíð haldið á lofti til sigurs. Þetta er baráttuhvöt sem
ætið er vert að hafa í huga og taka tillit til.
Eg vil gera niðurlag kvæðisins að lokaorðum þessara hugleiðinga:
Notið, vinir, vorsins stundir,
verjið tíma og kröftum rétt,
búið sólskært sumar undir
sérhvem hug og gróðurblett. Á hvítasunnu 1983.
íslandi allt.
SKINFAXI
3