Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1983, Page 7

Skinfaxi - 01.06.1983, Page 7
Gísladóttir. Jón Hólm Stefáns- son formaður sambandsins flutti skýrslu stjórnar. í skýrsl- unni kom fram að mjög góð þátttaka var í Trimmdeginum og lenti sambandið í 2. sæti í keppninni um bestu þátttök- una. Fyrir það fékk sambandið veglegan bikar. Gefin voru út nokkur fréttabréf, sem fóru inn á hvert heimili og sköpuðu góða kynningu á sambandinu. Þá kom fram í skýrslunni að Elfa Armannsdóttir íþróttakennari á Laugum, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri og frjáls- íþróttaþjálfari UDN í sumar. Símon Sigvaldason hefur verið ráðinn þjálfari í knattspymu. Iþróttamaður ársins 1982 hjá UDN var valinn Þórólfur Sig- urðsson, Innri - Fagradal. Helstu samþykktir þingsins voru um íþróttamót og íþrótta- mál, einnig um fjármál. Jón Hólm Stefánsson baðst undan endurkjöri. Formaður var kosinn Kristján Gíslason kenn- ari á Laugum. Þing HHF. Héraðsþing HHF var haldið mánudaginn 13. júní í Tálkna- firði. Mæting á þingið var góð. Stærstu þættimir í starfseminni framundan verður mótahald. Sambandið verður með lið í knattspymu í 4. deild. Einnig verður sambandið með knatt- spymulið í 3. 4. og 5. flokki í íslandsmótinu. Verið er að hanna merki fyrir sambandið. Margar samþykktir vom gerðar á þinginu, m.a. var samþykkt að stefna að þátttöku í næsta landsmóti. Á þinginu var sam- bandinu afhentar kr. 25.000 frá Kaupfélagi Vestur Barðstrend- inga. Heiðar Jóhannsson sem átti að ganga úr stjórn, var endurkjörinn ritari sambands- ins. Þing UÍÓ. Ársþing UÍO var haldið 7. maí á Hótel Ólafsfirði. Magnús Stefánsson formaður sam- bandsins flutti skýrslu stjómar. Aðalstarfsemin er íþróttastarf og ber þar hæst skíðaíþróttin, sem er þó mest á vegum Iþf. Leifturs. Samþykkt var að efla frjálsíþróttastarfið, en Guð- mundur Sigurðsson frjáls- íþróttamaður hefur undanfarin tvö sumur þjálfað frjálsar íþróttir með góðum árangri. í sumar verður Róbert Gunnars- son frjálsíþróttaþjálfari, en hann er á fyrsta ári í IKI. Þetta starf er í samstarfi við Iþf. Leiftur. Magnús Stefánsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs. For- maður var kosinn Björn Þór Ólafsson. Þing USÚ. 51. þing USÚ var haldið að Reyðará í Lóni laugardaginn 11. júní. Formaður USÚ Páll Helga- son flutti skýrslu stjómar og sagði frá helstu verkefnum sl. árs. USÚ varð 50 ára á sl. ári. I tilefni af því var ráðist í að skrifa sögu USÚ og aðildarfélaga þess. Verður þetta hið glæsilegasta rit fullt af fróðleik og frásögum af starfi USÚ og félaganna í 50 ár. Rit þetta er nú í vinnslu og kemur út fljótlega. í ritnefnd eiga sæti Þorsteinn Geirsson, Ásmundur Gíslason og Óskar Helgason. Einnig lét sambandið gera veggplatta og könnur með merki USÚ í tilefni afmælisins, er verður selt í fjáröflunarskyni. I skýrslu stjórnar kom m.a. fram að íþróttastarf er öflugt innan USÚ einkum frjálsíþrótt- ir, æfingar voru stundaðar í öllum félögum yfir sumartím- ann, undir stjórn framkvæmda- stjóra USÚ Svövu Arnórsdóttur. Eitt félag var endurreist á s.l. ári, Umf. Hvöt í Lóni og starfar það nú af miklum krafti. Nú em virk félög í öllum sveitum A - Skaft. og sum geysi öflug eins og t.d. Umf. Sindri á Höfn, sem er eitt af stærstu og öflugustu fél- ögum innan UMFÍ. Talsverðar umræður urðu á þinginu t.d. um fjármál og að- stöðu til íþróttaæfinga, en unn- ið er að uppbyggingu valla á Höfn og hjá Hvöt í Lóni. Einnig batnaði aðstaða innanhúss vemlega með tilkomu íþrótta- hússins á Höfn á sl. ári. Einnig var mikið rætt um að koma upp aðstöðu til skíðaíþrótta, en hún er engin á svæði USÚ. Fulltrúar vom frá öllum félögum nema Golfklúbbi Hafnar. Þingforsetar vom Þorsteinn Geirsson bóndi Reyðará og Torfi Steinþórsson Hala. Gestur þingsins var Skúli Oddsson frá UMFÍ. Mikill hugur var í þingfull- trúum að efla enn frekar starf USÚ enda næg verkefni fram- undan og mikið af áhugasömu fólki til að vinna störfin. Páll Helgason gaf ekki kost á sér til formanns aftur. Stjóm USÚ SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.