Skinfaxi - 01.06.1983, Síða 10
Umf. Bjarmi í Fnjóskadal
leikur í 1. deild í blaki.
Á þingi HSÞ hittum við að máli Ketil Tryggvason, sem verið hefur fortnaður Umf. Bjarma
undanfarin 3 ár, en hann hefur nú látið afformennsku og Hermann Herbertsson tekinn við. Við
báðum Ketil að segja okkurfrá því helsta ístarfinu hjá félaginu.
Ketill Tryggvason.
Mestu umsvifin hjá félaginu
eru í sambandi viö þátttöku
þess í 1. deild í blaki. Liðið
hefur leikið einn vetur í 1. deild
og hefur unnið sér rétt til að
leika aftur í deildinni næsta
vetur. Liðið var í 4. sæti í
deildinni af 5 liðum sem eru í 1.
deild. Voru jafnir að stigum og
lið nr. 3, sem var lið UMSE, en
höfðu óhagstæðara hlutfall.
Þróttur í Reykjavík varð
Islandsmeistari í blaki og ÍS
varð í örðu sæti. Umf. Bjarmi
lék áður tvo vetur í 2. deild.
Fyrri veturinn lenti liðið í 2.
sæti, en þann seinni sigraði
liðið í deildinni og vann sér rétt
til að leika í 1. deild.
Uppistaða liðs Umf. Bjarma eru
starfsmenn í Stórutjarnarskóla
ásamt félögum í sveitinni.
Þjálfari liðsins er Hannes
Karlsson, Húsavík. Æfingar
hafa að mestu farið fram í
Stórutjarnarskóla, en í vetur
fluttum við æfingamar í Hafra-
lækjarskóla, þar sem er löglega
stór salur. Þar fara heimaleikir
liðsins fram. í blakinu er leikin
fjórföld umferð þ.e. tveir
heimaleikir og tveir leikir að
heiman.
Ketill segir kostnaðinn við þátt-
töku í 1. deild vera mjög
mikinn. Félagið greiðir sam-
eiginlegan kostnað, en liðs-
menn greiða sjálfir flugfar
suður á leiki og annan ferða-
kostnað. Hann telur að liðs-
menn muni gefast upp á þessu
þegar til lengdar lætur.
Umf. Bjarmi á tvo grasvelli
við Fnjóskárbrú. Þar er félagið
að byggja vallarhús, sem á að
vera fyrir búningsaðstöðu og
einnig sem áhaldageymsla.
Þetta er dýr framkvæmd fyrir
Iítið félag sem hefur frekar tak-
markaða tekjustofna. Menn eru
samt bjartsýnir og verður unnið
af krafti við byggingu hússins í
sumar.
IS
Góðar
gjafir gefnar
í kvöldverðarboði í lok aðal-
fundar Samvinnutrygginga,
sem haldinn var á Hótel Blöndu-
ósi, föstudaginn 3. júní, var
formönnum USVH og USAH
afhent gjafabréf að upphæð kr.
50.000,- til hvors héraðssam-
bands. Forystumönnum Sam-
vinnutrygginga eru færðar
bestu þakkir fyrir rausnarskap-
inn og hlýhug í garð hreyfing-
arinnar.
IS
10
SKINFAXI