Skinfaxi - 01.06.1983, Page 11
Fastmótað leiklistarstarf
hjá Umf. Skriðuhrepps, UMSE
Guðmundur Steindórsson.
Á þingi UMSE hitti tíðinda-
maður Skinfaxa að máli Guð-
mund Steindórsson, gjaldkera
UMSE, en hann hefur á undan-
förnum árum starfað mikið að
leiklistarmálum með félagi
sínu, Umf. Skriðuhrepps. Guð-
mundur var í leiknefnd félags-
ins í nokkur ár. Félagið hefur
sett upp leikrit reglubundið
annað hvert ár í tæpa tvo ára-
tugi. Leikstjórar hafa verið frá
Akureyri, fyrst Julíus Oddsson
og eftir að hann féll frá hefur
Johann Ögmundsson leikstýrt
hjá félaginu.
Sýningar fara fram í félags-
heimilinu Melum í Elörgárdal,
en einnig hefur verið farið með
sýningar um héraðið og í Þing-
eyjarsýslu. Verkefnaval hefur
verið miðað við þetta, þannig
að sviðsbúnaður hefur verið
með einfaldari hætti.
Leiksviðið á Melum er einnig
það þröngt, að ekki hefur verið
hægt að setja upp mjög fyrir-
ferðamikil stykki.
Stærsta verkefni sem félagið
hefur sett upp var Piltur og
stúlka, sem leikið var árið 1980,
en árið 1982 var leikritið Get-
raunagróði sýnt hjá félaginu.
Leikritin hafa verið sýnd 10 -12
sinnum, nema Piltur og stúlka
sem sýnt var 17 sinnum.
Guðmundur hefur leikið í flest-
um leikritum síðan 1970.
Hér á árum áður var einnig
öflugt leiklistarstarf. Á árunum
í kring um 1950 var einnig starf-
andi bindindisfélag í hreppn-
um og voru sett upp leikrit á
þeim tíma í samstarfi við það
félag.
Þegar Guðmundur var yngri
stundaði hann knattspymu, en
færði sig í leiklistina þegar frá
leið. Að sögn Guðmundar hefur
verið mikil leiklistarstarfsemi í
Eyjafirði í vetur. Sett hafa verið
upp leikrit á fimm stöðum og í
flestum tilvikum á vegum ung-
mennafélaga eða þá í samstarfi
við leikfélög.
IS
Frá Ungmennasambandi
Skagafjarðar.
Um síðustu helgina í maí var á
vegum Ungmennasambands
Skagafjarðar haldið á Sauðár-
króki leiðbeinendanámskeið í
íþróttum.
Námskeiðið var miðað við
A - stig gmnnskóla ÍSÍ. Leið-
beinendur vom þeir Gísli Sig-
urðsson og Óskar Thorarensen.
Sérstaklega var farið yfir tækni
og þjálfunaraðferðir í frjálsum
íþróttum. Þátttakendur vom 11.
Gert er ráð fyrir því að þátt-
takendur þessir verði að ein-
hverju leyti aðstoðarþjálfarar
heima í félögunum í sumar og
leiðbeini undir handleiðslu
Guðmundar Sigurðssonar frá
Ólafsfirði, sem er nemandi í
íþróttakennaraskóla íslands á
Laugarvatni, og ráðinn hefur
verið til starfa sem þjálfari í
héraðinu. Hann mun jafnframt
annast framkvæmdastjóm fyrir
UMSS í sumar.
Góðar óskir fylgja Guðmundi
um árangursrík störf og þeim
öðrum sem að íþróttamálum
vinna á vegum félaganna og
sambandsins.
SKINFAXI
11