Skinfaxi - 01.06.1983, Blaðsíða 12
Knattspyman er fyrirferðarmest í starfinu
* ____ *
segir Olafur Tryggvason, formaður Umf. Arroðans, UMSE.
Skinfaxi hitti ÓlafTryggvason á þingi UMSE
og bað hantt að segja frá þvíhelsta úr starfi félagsins.
Þetta er annað starfsárið hjá Ólafi sem formaður.
Elann var áður ritari félagsins í mörg ár.
Ólafur Tryggvason.
Á seinni árum hefur knatt-
spyrnan verið fyrirferðarmest í
starfsemi félagsins, þar sem
félagið hefur verið með lið í
þriðju deild. Síðastliðið ár gekk
knattspyman reyndar illa og féll
liðið í fjórðu deild. Hins vegar
er stefnt að því að ná því strax
upp aftur á þessu sumri. Félag-
ið hefur einnig á undanfömum
árum átt gott frjálsíþróttalið og
hafa kastaramir Sigurlína
Hreiðarsdóttir og Emilía Bald-
ursdóttir borið hróður félagsins
hæst.
Á undanfömum ámm hefur
verið mikið leiklistarstarf hjá
félaginu í samstarfi við Leik-
félag Ongulstaðahrepps. í vetur
var sett upp leikritið Hita-
bylgja. Leikstjóri var Theódór
Júlíusson. Mikið var skrifað um
leikritið í blöðum og fékk það
þar góða dóma. Leikritið var
því miður ekki vel sótt, en
sýningar vom 12 í Freyvangi og
ein í ídölum í Aðaldal. Leik-
félagiö var á sínum tíma stofnað
til að koma á leikstarfsemi í
hreppnum, en síðan lagðist
starfsemin niður í nokkur ár. F>á
tók ungmennafélagið sig til og
stofnaði leiknefnd og hafa
félögin síðan starfað saman að
leiklist. Leiklistamámskeið var
haldið á vegum félaganna í
Freyvangi fyrir áramót. Leið-
beinandi var Jonas Jónasson.
Ungmennafélagið á 16% í
félagsheimilinu Freyvangi. Fél-
agið er með ýmis konar starf-
semi í félagsheimilinu á
veturna, aðra en þá sem talin
hefur verið, svo sem tóm-
stundakvöld tvisvar í viku,
skákmót hafa verið haldin á
vegum félagsins og fastur liður í
starfinu er Páskaskákmót. Auk
þess að eiga þennan eignar-
hluta í Freyvangi, þá á félagið
íþróttavöll á Laugalandi, en
hann er hins vegar orðinn mjög
lélegur.
IS
Ungmennafélagar
Verslið hjá þeim sem auglýsa t
Skinfaxa.
12
SKINFAXI