Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 13
Öflugt starf hjá Umf. Ármanni.
Starfið hjá Umf. Ármanni á
Kirkjubæjarklaustri hefur verið
með miklum blóma undanfarið.
Valgeir Ingi Ólafsson hefur
verið framkvæmdastjóri hjá fél-
aginu í hlutastarfi síðan 1.
nóvember s.l. Sér hann um dag-
legan rekstur hjá félaginu og
einnig um rekstur félagsheim-
ilisins Kirkjuhvols.
í vetur setti félagið upp
leikritið ,,Bam í vændum".
Leikstjóri var Jónína Kristjáns-
dóttir, en hún var einnig leik-
stjóri í fyrravetur er Skjald-
hamrar vom settir á svið.
Leikritinu var vel tekið og var
það sýnt bæði á Klaustri og í
nágrannabyggðunum.
Sýningar á leikritinu urðu alls
sjö.
Félagið hefur undanfama
vetur komið á dansnámskeiðum
í samvinnu við Skólafélagið
Ask.
Skákíþróttin var mikið stund-
uð í vetur. Teflt var einu sinni í
viku og stundum tvisvar. Skák-
vertíðinni lauk með þátttöku í
Skákmeistaramóti USVS. Þar
varð Stefán Þormar í Vík sigur-
vegari.
Iþróttir vom einnig snar
þáttur í starfinu í vetur og vom
reglulegar æfingar í frjálsum
íþróttum, badminton og frúar-
leikfimi. Sumarstarfið er farið í
gang og hefur Vigfús Helgason
verið ráðinn þjálfari hjá félaginu
í sumar. Æfingar í frjálsum
íþróttum og knattleikjum verða
á þriðjudögum og fimmtu-
dögum.
Á síðastliðnu ári fékk félagið
land undir íþróttavöll. Búið er
að vinna teikningar af íþrótta-
svæðinu. Ákveðið er að full-
vinna knattspymuvöllinn í
sumar og sá í hann. Em fram-
kvæmdir við það verkefni
hafnar. Hluti af svæðinu er
æfingasvæði, sem einnig verður
þakið í sumar.
Tjaldstæði hefur verið skipu-
lagt í næsta nágrenni við
íþróttasvæðið. Helgina 11. og
12. júní unnu ungmennafélagar
og aðrir hreppsbúar við að þekja
svæðið. Seinni daginn, sem var
Göngudagur fjölskyldunnar,
var byrjað á því að fara í
gönguferð, áður en tekið var til
við að þekja. Þama verður
hreinlætisaðstaða, sem einnig
nýtist íþróttasvæðinu.
Félagið sér um hátíðahöldin
17. júní á Klaustri. Dagskráin
verður auglýst með dálítið sér-
stæðum hætti. Ekið verður um
nágrannasveitimar og auglýst í
gjallarhorn. Helstu atriði dag-
skrárinnar verða ávarp fjallkon-
unnar, ræða formanns Umf.
Ármanns, íþróttir margs konar
og ratleikur. Unglingadans-
leikur verður 16. júní. Diskótek
verður fyrir yngstu bömin og
foreldrana að deginum, en al-
mennir dansleikir verða að
kvöldi 17. og 18. júní.
Stjóm Umf. Ármanns skipa
nú: Sigmar Helgason formaður,
Vilhjálmur Bjamason ritari og
Rannveig Bjarnadóttir gjald-
keri.
IS
Frá 17. júnímóti hjá Umf. Ármanni.
SKINFAXI
13