Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1983, Side 16

Skinfaxi - 01.06.1983, Side 16
Framkvæmdast j órar héraðssambanda kynntir. Amór Benónýsson. Amór Benónýsson á Hömr- um í Reykjadal hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HSÞ frá 1. apríl til 31. ágúst. Hann verður í fullu starfi þennan tíma. Amór er 28 ára, leikari að mennt/ útskrifaðist vorið 1982 frá Leiklistarskóla íslands. Hann hefur í vetur starfað við leikstjóm á Grenivík og við Menntaskólann á Akureyri. Einnig lék hann í Atómstöðinni í vetur hjá Leikfélagi Akur- eyrar. Amór sat eitt ár í stjóm HSÞ fyrir nokkmm ámm. Hann var formaður Umf. Eflingar í Reykjadal í nokkur ár. Amór sat í Menntaskólanum á ísafirði í eitt og hálft ár, en hætti þar og gerðist einn vetur íþrótta- kennari við Hafralækjarskóla í Aðaldal og annan vetur var hann íþróttakennari við Lauga- bakkaskóla í Miðfirði. Amór er liðtækur íþróttamaður og hefur Bjöm Ingimarsson. aðallega stundað knattspymu, en æft flestar íþróttagreinar og keppt hefur hann í frjálsum íþróttum á héraðsmótum. Björn Ingimarsson, Asláks- stöðum, Arnameshreppi í Eyja- firði tók við starfi fram- kvæmdastjóra UMSE 1. júní og verður í hálfu starfi í sumar og er ráðinn til 1. september. Björn er stúdent frá Menntaskóla Akureyrar og stundar nám í viðskiptafræði á veturna. Hann var eitt ár formaður í sínu fél- agi, Umf. Möðmvallarsóknar. Hann hefur verið í frjálsíþrótta- nefnd UMSE mörg undanfarin ár. Björn er 26 ára og ókvæntur. Elfa Ármannsdóttir, íþrótta- kennari á Laugum í Dalasýslu hefur verið ráðin framkvæmda- stjóri og frjálsíþróttaþjálfari UDN í sumar. Hún er í fullu Elfa Ármannsdóttir. starfi og er ráðningartími hennar frá 1. júní til 15. ágúst. Sumarið 1980 var hún frjáls- íþróttaþjálfari sambandsins. Elfa er félagi í Umf. Æskunni. Hún er fædd og uppalin í Garðinum, en var í sveit í Dölunum sem unglingur. Elfa er ógift. Lárentsínus Kristjánsson. 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.