Skinfaxi - 01.06.1983, Blaðsíða 17
Hilmar Pálsson.
Gunnar Baldvinsson.
Svava Amórsdóttir.
Lárentsínus Kristjánsson,
Stykkishólmi hóf störf sem
framkvæmdastjóri hjá HSH um
miðja maí. Hann verður í fullu
starfi hjá sambandinu í sumar
og er ráðinn til 1. september.
Hann varð stúdent frá Fram-
haldsdeild Samvinnuskólans í
vor. Lárentsínus tók við for-
mennsku í UMF. Snæfelli um
síðastliðin áramót. Var áður í
Knattspymuráði Snæfells.
Hann æfir knattspymu og er
markvörður í liði Snæfells. A
veturna æfir hann körfuknatt-
leik. Lárentsínus er 19 ára og er
ókvæntur.
Gunnar Þór Jónsson.
Hilmar Pálsson er íþrótta-
kennari og yfirkennari á Núpi.
Hann heíur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri HVÍ í sumar og
verður í fullu starfi. Hann var
einnig framkvæmdastjóri sam-
bandsins sumarið 1981. Hilmar
hefur verið í stjórn HVÍ í mörg
ár. Var í eitt ár formaður og er nú
ritari sambandsins. Hilmar er
kunnur frjálsíþróttamaður,
hefur keppt á öllum landsmót-
um síðan 1971. Hann er kvæntur
Guðbjörgu Skarphéðinsdóttur
og eiga þau tvö börn.
Gunnar Þór Jónsson er 30 ára
kennari við Bamaskólann í
Keflavík. Hann tók við fram-
kvæmdastjórastarfi UMFK af
Steinari Jóhannssyni 1. mars
s.l. Hann er í hálfu starfi hjá
UMFK. Gunnar hefur starfað á
vegum skólans og Æskulýðs-
ráðs við æskulýðs - og ungling-
astarf í bænum undanfarin ár.
Hann er fulltrúi UMFK í stjóm
ÍBK. Hann er einnig í Félags-
málaráði Keflavíkur og í Æsku-
lýðsráði. Gunnar lék með liði
ÍBK í 1. deild í knattspymu árin
1972 -76, en á þeim tíma urðu
ÍBK íslandsmeistarar árið 1973
og bikarmeistarar árið 1975.
Gunnar er kvæntur Ingu Maríu
Ingvarsdóttur og eiga þau 2
börn.
Gunnar Baldvinsson, Reykja-
vík hefur verið endurráðinn
framkvæmdastjóri UMSK og
starfar hjá þeim í sumar. Hann
starfaði einnig hjá þeim í fyrra-
sumar, en tvö sumur þar á
undan var hann aðstoðar-
framkvæmdastjóri UÍA.
Gunnar stundar nám í við-
skiptafræði á vetuma. Hann
hefur starfað töluvert að félags-
málum og er nú m.a. varafor-
maður ÆRR. Gunnar er 22 ára
og ókvæntur.
SÁJava Amórsdóttir, Höfn í
Homafirði hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri og frjálsí-
þróttaþjálfari hjá USÚ í sumar.
Hún er í fullu starfi og er ráðn-
ingartími hennar frá 1. júní til
31. ágúst. Letta er þriðja
sumarið sem hún er í þessu
starfi. Svava stundar nám í
Fjölbrautaskóla Suðumesja á
SKINFAXI
17