Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 23

Skinfaxi - 01.06.1983, Qupperneq 23
Ingvar Jónsson, Stykkishólmi. Ingvar var í Fjölbrautar- skólanum á Akranesi áður en hann kom í ÍKÍ. Hann er félagi í Umf. Snæfell. Hann hefur stundað frjálsar íþróttir og knattspymu, hefur verið í knattspymuliði Snæfells. Á veturna hefur hann æft körfu- knattleik og í vetur hefur hann leikið með Umf. Laugdæla í 2. deild þar sem þeir sigmðu og unnu sér þar með rétt til að leika í 1. deild á næsta ári. Eitt sumar var hann þjálfari í frjálsum íþróttum og knattspyrnu hjá Umf. Fram á Skagaströnd og það sumarið keppti hann fyrir USAH í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Áhuginn á því að komast í ÍKÍ vaknaði þegar hann fór í Reyk- holt, en þar byrjaði hann í 9. bekk og var þar í þrjá vetur. Hann var staðráðinn í því að reyna að komast í ÍKÍ. í Reyk- holti vom mikil íþróttasam- skipti við aðra skóla svo sem Reykjaskóla, Bifröst, Hvann- eyri og fleiri. íþróttir vom mikið stundaðar og íþrótta- salurinn oftast upptekinn frá því kennslu lauk á daginn fram á kvöld. Ingvar segist hafa vitað vel að hverju hann gekk þegar hann kom í ÍKI. Hann kann ágætlega við sig í skólanum og segir þetta vera góðan og samstilltan hóp sem nú er í skóianum. Ingvar hugsar sér að komast í starf strax og hann hefur út- skrifast úr skólanum, en þó hefur hann tilhneigingu til þess að komast í skóla erlendis og sérhæfa sig í einhverri grein. Ingvar verður þjálfari yngri fiokkanna í knattspymu hjá Snæfelli í sumar. IS Skrifstofustúlka UMFÍ. UMFÍ vantar stúlku í vélritun og almenn skrifstofustörf, sem fyrst. Þarf aö vera dugleg í vélritun og gjaman kunnug starfi okkar. Nánari upplýsingar gefur Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ í síma 12546. UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.