Skinfaxi - 01.06.1983, Side 25
Framkvæmdastjóranámskeið
UMFÍ
SKINFAXI
Hið árlega framkvæmdastjór-
anámskeið UMFÍ var haldið að
Laugum í Dalasýslu 3. - 5. júní
s.l. Hér er um að ræða þátt sem
er búinn að vinna sér nokkuð
fastan sess í starfinu. Farið var
með áætlunarbifreið úr Reykja-
vík á föstudagskvöld og heim
aftur á sunnudag. Þeir sem búa
í næsta nágrenni svo og Eyfirð-
ingar og Þingeyingar komu ak-
andi á einkabílum. Gengu þessi
ferðalög að og frá Laugum
áfallalaust, ef frá eru taldir
erfiðleikar sem Eyfirðingar
lentu í, verður það ekki tíundað
hér frekar.
Þátttakendur í námskeiðinu
voru 23 ef með eru taldir þeir
sem stjómuðu því, en þeir voru
Sigurður Geirdal, Skúli Odds-
son og Diðrik Haraldsson.
Aðalefni námskeiðsins að
þessu sinni var ,,framkvæmd
íþróttamóta". Kennt var eftir
efni sem Ingimundur Ingi-
mundarson, Hafsteinn Jóhann-
esson og Sigurður Geirdal
höfðu nýlega tekið saman.
Margir aðrir liðir vom á dagskrá
svo sem Göngudagur UMFÍ og
Saga UMFÍ.
Þá vom stórir liðir á nám-
skeiðinu skilgreining á hlut-
verki framkvæmdastjóra, fram-
kvæmd ungmennabúða og út-
gáfa fréttabréfa. Námskeið
þetta tókst í alla staði mjög vel
og vom þátttakendur á einu
máli um að þeir hefðu haft af
því mikið gagn. Vom þátttak-
endur sammála um að mun
heppilegra væri að vera með
námskeiðið úti í sveit, sem
lengst frá skarkala þéttbýlisins,
því tíminn nýttist mun betur.
Nokkrir nýliðar vom á nám-
skeiðinu, en margir vom þama
sem oft hafa setið samskonar
námskeið.
Aðstaðan á Laugum er mjög
góð fyrir svona námskeið. Er
starfsfólki staðarins hér með
færðar bestu þakkir fyrir góðar
móttökur.
IS
Fylgst med af athygli.
Frá framkvæmdastjóranámskeiðinu.