Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1983, Síða 26

Skinfaxi - 01.06.1983, Síða 26
Viðtal við frjálsíþróttaþjálfara HSÞ. KRISTJONU HRAFNKELSDÓTTUR Kristjana Hrafnkelsdóttir hóf störf sem frjálsíþróttaþjálfari HSÞ 1. júní og er ráðin þar út ágúst. Kristjana er 23 ára íþróttakennari frá Stykkis- hólmi. Hún sótti framkvæmda- stjóranámskeiðið sem haldið var á Laugum í Dalasýslu í júní byrjun. Skinfaxi náði þar tali af henni og lagði fyrir hana nokkrar spumingar. Hvað vilt þú segja okkur um þína skólagöngu? Eg útskrifaðist úr ÍKÍ vorið 1982. Veturinn áður en ég fór í ÍKÍ var ég í íþróttalýðháskóla í Danmörku. Þar fékk ég mikinn áhuga á því að geta leiðbeint öðrum og sótti því um íþrótta- kennaraskólann. Mér finnst miklu ánægjulegra að leiðbeina öðmm í íþróttum en stunda þær sjálf. Síðastliðinn vetur var ég í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og á þar eftir einn vetur til stúdentsprófs. Með náminu í vetur kenndi ég leikfimi 10 tíma á viku í Landakotsskóla, sem er barnaskóli. Eg reikna með að það verði eins næsta vetur. Hvaða íþróttir hefur þú stundað? Ég byrjaði 14 ára að æfa frjálsar íþróttir hjá Snæfelli í Stykkishólmi. Ég keppti á hér- aðsmótum fyrir Snæfell og utan- héraðs fyrir HSH til tvítugs. Mínar aðalgreinar em hástökk, kúluvarp, kringlukast og milli- vegalengdahlaup. Mig minnir að ég hafi átt um tíma héraðsmet í 1500 m. hlaupi. Mín besta grein er sennilega hástökkið, en þar hef ég náð best 1.65 m. Ég hef líka æft körfuknattleik í mörg ár. Hef leikið í íslands- mótinu í körfuknattleik í fimm keppnistímabil, í fjögur með KR og eitt með Umf. Laugdæla. í vetur lék ég með KR og við töpuðum ekki leik í íslands- mótinu. Ég hef þrisvar orðið íslandsmeistari í körfu með KR. Hvar hefur þú stundað þjálfun áður? Sumarið eftir að ég kom frá Danmörku fékk ég vinnu hjá Neista á Djúpavogi við frjáls- íþróttaþjálfun. Ég var þar einnig næsta sumar á eftir. Ég skipu- lagði starfið þama með leikja- námskeiðum á daginn og með þjálfun á kvöldin. í fyrrasumar starfaði ég hjá tveimur félögum í Mývatnssveit, Umf. Mývetn- ingi og íþf. Eilífi. Ég var hjá þeim í hálfu starfi við frjáls- íþróttaþjálfun og í hálfu sem sundkennari og stjómandi vinnuskóla. Þar kenndi ég sund bæði í sundlauginni á Skútu- stöðum, sem Umf. Mývetningur á og einnig var ég með sund- kennslu í nýju sundlauginni. í Reykjahlíð. Mér finnst gaman að vinna með Þingeyingum og er því búin að ráða mig aftur í sumar hjá þeim og nú hjá HSÞ. Hvemig verður starfið hjá þér t sumar? Framundan er þjálfun í frjáls- um íþróttum í ungmennabúð- um, sem em að hefjast nú næstu daga á Laugum í Reykjadal. Þátttakendur í ungmennabúð- unum verða yfir 50 og verða í 8 daga. Tvær stúlkur, sem voru á íþróttabraut á Laugum í vetur verða einnig leiðbeinendur á námskeiðinu. Þjálfuninni í hér- aðinu verður þannig háttað, að ég mun reyna að fara í öll fél- ögin, þó það verði ekki í hverri viku. Við skiptum sambandinu í fimm svæði og reynum að halda saman héraðsliði í frjáls- um. Við stefnum einnig að því að vera með æfingabúðir á Laugum yfir helgi einu sinni eða oftar. IS 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.