Skinfaxi - 01.06.1983, Page 28
Húnavaka
I sambandi við héraðsþing
USAH sem haldið var árið 1946
var haldin almenn skemmti-
samkoma á Blönduósi. Þá sýndi
Leikfélagið á Skagaströnd sjón-
leik og karlakór Bólstaðarhlíð-
arhrepps söng. Einnig var stig-
inn dans lengi nætur.
Nýbreytni þessi varð til þess
að farið var að ræða um, hvort
ekki væri rétt, að sambandið
efndi til samkomu á vetri
hverjum með fjölbreyttri
skemmtidagskrá og stæði sá
mannfagnaður í viku, svo sem
brúðkaupsfagnaður í fomum
sið. Máli þessu var hmndið í
framkvæmd strax árið 1948.
Stóð samkoman yfir í sex daga
og hlaut nafnið Húnavaka. Alla
tíð síðan hefur Húnavaka verið
liður í starfi USAH, nema 1949
að hún féll niður vegna sam-
komubanns.
Uppbygging Húnavöku og
skipulag hefur verið í höndum
USAH, en ýmis félagasamtök
innan Austur - Húnavatns-
sýslu leggja hönd á plóginn.
Megin uppistaða skemmtiefnis
er húnvetnskt, en alltaf er þó
nokkuð um aðfengin skemmti-
atriði. Frá árinu 1966 hefur svo-
nefnd Húsbændavaka verið
fastur þáttur í Húnavöku og sér
USAH um skemmtiefni það
kvöld. Síðustu ár hefur sú
þróun orðið að leikflokkar,
kórar og aðrir utan héraðs hafa
falast eftir að fá að taka þátt í
Húnavöku.
Húnavaka hefur í áranna rás
verið helsta fjáröflunarleið
USAH og gert sambandinu
kleyft að útvíkka starfssvið sitt.
Árið 1983 blés ekki byrlega fyrir
Húnavöku sem fram fór eins og
venja er um sumarmál. Eins og
lesendum er eflaust í fersku
minni var leiðinda veður, ófærð
og ofan á allt var þingkosning-
um skellt beint í Húnavöku
(sennilega sem skemmtiatriði).
Að þessu sinni var dagskrá
Húnavöku mjög með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Á dag-
skránni var m.a. leikrit, dans-
leikir, kvikmyndasýningar,
söngur og listkynning. Á Hús-
bændavökunni í ár rabbaði hr.
Sigurbjörn Einarsson fyrrv.
biskup við samkomugesti.
Ritið Húnavaka kom út í 23.
sinn um Húnavöku, en þar er
að finna ýmislegt húnvetnskt
efni. Ritstjóri er Stefán Á. Jóns-
son Kagaðarhóli, en með
honum starfar ritnefnd sem ár-
lega er kosin á þingi USAH.
Utgefandi ritsins er USAH.
BS
Skólakeppni
USAH.
í allmörg ár hefur USAH
staðið fyrir keppni milli grunn-
skólanna í Austur - Húna-
vatnssýslu. Þegar keppni þessi
fór af stað var keppt í knatt-
spyrnu, sundi, frjálsum íþrótt-
um innanhúss og skák. Reglu-
gerð um skólakeppnina var
breytt fyrir nokkrum árum og
nú er keppt í blaki, körfubolta,
frjálsum íþróttum og skák.
Fullvíst má telja að keppni þessi
hafi mjög hvetjandi áhrif á
nemendur og úr hópnum koma
fram einstaklingar sem setja
verulegan svip á sumarstarf
ungmennafélaga sýslunnar og
USAH.
Úrslit skólamótsins 1982/3 urðu
þessi:
Blak:
Körfubolti:
Piltar y-deild
piltar e-deild
stúlkur y-deild
stúlkur e-deild
Blönduós
Blönduós
Húnavellir
Húnavellir
Frjálsar íþróttir innanhúss:
Yngrideild Blönduós
Eldrideild Húnavellir
Piltar y-deild
piltar e-deild
stúlkur y-deild
stúlkur e-deild
Blönduós Skák: 10 manna sveitir
Blönduós Húnavellir varð sigurvegari.
Húnavellir Þolhlaup nemenda úr 1-4 bckk:
Blönduós Blönduós.
28
SKINFAXI