Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1983, Side 29

Skinfaxi - 01.06.1983, Side 29
Af útgáfustarfi. Útgáfustarf héraðssambanda og einstakra ungmennafélaga er mjög öflugt, eins og oft hefur verið sagt frá áður. Skinfaxa hafa borist nokkur rit, sem hér verður stuttlega sagt frá. Húnavaka rit USAH kom út í 23. skipti um Húnavöku, sem haldin var um sumarmál og sagt er frá annars staðar í blaðinu. Ritið er 260 blaðsíður auk aug- lýsingasíðna. í ritinu er mikill fróðleikur gamall og nýr. Magnús Olafsson, Sveinsstöð- um ritar sögu sambandsins síð- astliðinn áratug. Pá er í ritinu fréttir og fróðleikur úr héraði frá síðastliðnu ári. Húni rit USVH er komið út. Þetta er 5. árgangur. I ritinu er sem fyrr margar fróðlegar frá- sagnir og kvæði. Einnig eru fréttir úr sveitarfélögunum í sýslunni og fréttir af starfi USVH frá síðastliðnu ári. Snæfell rit UÍA er komið út. í því eru aðallega fréttir af íþróttastarfi síðastliðins árs svo og viðtöl við ýmsa kappa. Afmælisrit Umf. Tindastóls kom út í vetur. Félagið varð 75 ára 26. október 1982. Afmælis- hátíð var haldin 29. október og er sagt frá henni í afmælisritinu. Aðalefni ritsins eru frásagnir af íþróttastarfi og leiklist hjá fél- aginu á liðnum árum. IS Athugasemd frá USAH Varðandi frétt í Skinfaxa frá þingi USAH er rétt að fram komi: Bjöm Sigurbjömsson var ekki endurkosinn formaður USAH á síðasta þingi. Sú venja er hjá USAH að stjómarmenn eru kosnir til þriggja ára í senn. Kjörtímabil núv. formanns er undir lok liðið á næsta ári. í stjórn vom kosin á síðasta þingi: Sigríður Gestsdóttir og Pétur Pétursson var endurkos- inn. Úr stjóm gekk Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Skaga- strönd, en hann var varafor- maður. Guðmundur hefur unnið mikið og gott starf fyrir ungmennafélagshreyfinguna í héraði ámm saman og er vel- kunnur innan UMFÍ fyrir setu á mörgum þingum UMFÍ. Á síðasta þingi var kosið í ýmsar nefndir og trúnaðar- stöður fyrir USAH og munu um 60 einstakhngar hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi. Mikill hugur er nú í frjáls- íþróttafólki sambandsins og gengið hefur verið frá ráðningu þjálfara. Stjóm USAH er tiú þannig skipuð: Bjöm Sigurbjömsson fortnaður Valdimar Guðmannsson varafomiaður Sigríður Gestsdóttir ritari Stefdn Logi Haraldsson gjaldkeri Pétur Pétursson meðstjómandi. BS Olíufélagið Skeljungur hf EINKAUMBOÐ FYRIR „SHELL" VÖRUR Shell Suöurlandsbraut 4 Reykjavik SKINFAXI 29

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.