Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1983, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.06.1983, Blaðsíða 30
Skólamót USÚ og USVS 4. skólamót USÚ og USVS var haldið í Nesjaskóla og í íþrótta- húsinu á Höfn 15. og 16. apríl s.l. Voru það ungmennasam- böndin í báðum Skaftafells- sýslum sem stóðu að þessu móti. Skólamótin eru haldin árlega til skiptis í sýslunum og taka þátt í þeim skólakrakkar á aldrinum 10 - 16 ára. Eru það nemendur úr öllum grunnskól- um í Skaftafellssýslum. Keppt er í skák, körfubolta og frjálsum íþróttum. Verðlauna- peningár eru veittir fyrir 1.2. og 3. sæti í hverri grein í frjálsum. Auk þess skákbikar, þrír verð- launagripir í stigakeppni milli skólanna og síðan fær hver liðsmaður í sigurliðum körfu- boltans viðurkenningu. Að þessu sinni voru körfubolta- meisturum gefnar drykkjar- könnur með Úlfljótsmerkinu. Verðlaunin eru að mestu leyti kostuð af kaupfélögunum í báðum sýslum. A hverju ári taka þátt í þessum mótum um 150 krakkar og fer þeim heldur fjölgandi en hitt. Ohætt er að fullyrða að þessi skólamót hafi farið vel fram og verið jafnt þátttakendum sem aðstandendum til mikillar skemmtunar og ánægju. 4. skólamótið var sett í íþrótta- húsinu á Höfn kl. 13.00 laugar- dag af sýslumanni Austur- Skaftfellinga Friðjóni Guð- röðarsyni. Flutti hann stutt ávarp og veitti síðan hverjum skóla sýsluveifu og þjóð- hátíðarpening frá 1974. Keppendum í frjálsum íþrótt- um er skipt í 3 aldursflokka. 4. - 5 bekkur, 6. - 7. bekkurog8. og 9. bekkur. Stigahæsti skólinn í hverjum aldursflokki fékk síðan verðlaunagrip. Stigakeppni skólanna. 4. -5. bekkur 1. Hafnarskóli 68 stig 2. Nesjaskóli 47 - 3 Víkurskóli 42 - 4. Kirkjubæjarskóli 25 - 5. Ketilsstaðaskóli 21 - 6. -7. bekkur. 1. Víkurskóli 69 stig 2. Kirkjubæjarskóli 62 - 3. Nesjaskóli 40 - 4. Hafnarskóli 36 - Umf. Reykdæla varð 75 ára á sumardaginn fyrsta. Þann dag var haldið upp á afmælið í félagsheimilinu Logalandi. Þá kom einnig út afmælisrit, sem 8. -9. bekkur 1. Nesjaskóli 81 2. Kirkjubæjarskóli 60,5 3. Víkurskóli 45 4. Hafnarskóli 21.5 Skák 1. K i r kj u bæj a rs kó 1 i 17 vinninga 2. Víkurskóli 14 1/2 vinninga 3. Hafnarskóli 8 - 4. Nesjaskóli 6 1/2 - 5. Ketilsstaðaskóli 4 - Körfubolti Kirkjubæjarskóli sigraði bæði í pilta- og stúlknaflokkum. Asmundur Gíslason. Athugasemd frá ritstjóra. Til stóð að birta árangur í einstökum greinum á skóla- mótinu, en vegna plássleysis í blaðinu verður að láta nægja að birta einungis heildarúrslit í stigakeppni skólanna. IS fjallar um sögu félagsins í 75 ár. Helgi J. Halldórsson frá Kjal- vararstöðum ritaði söguna, en formaður ritnefndar var Vigfús Pétursson á Hægindi. /S Umf. Reykdæla 75 ára. 30 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.