Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2000, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.12.2000, Blaðsíða 6
Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, var í aðalviðtali í 3. tölublaði Skinfaxa og þar svaraði hann meðal annars þeirri spurningu hvort sameina ætti UMFÍog ÍSÍ „Ég sagöi nú venjulega þegar ég var framkvæmdastjóri að ég væri bara ekki tilbúinn til að yfirtaka ISI eins og staðan væri. Ég er kannski ekki besti maðurinn til að dæma um það núna en mér finnst markmiðin og stefnan skýrari hjá UMFÍ á meðan ÍSI fylgir meira straumnum ef það má orða það þannig." En þessi spurning sem alltaf kemur upp. Á að sameina UMFÍ og ÍSÍ? J : Engilbert Olgeirsson er framkvæmdastjóri HSK en hann átti sæti í vinnuhóp sem gerði úttekt vegna hugsanlegrar sameingar ÍSÍ og UMFÍ. Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ? „Já ég vil að UMFI og ISI sameinist í ný regnhlífa- samtök. Þá er ég ekki að tala um að annar aðilínn yfirtaki hinn heldur vil ég sjá ein ný öflug samtök. Það þarf auðvitað að huga að mörgum málum áður en svona stór ákvörðun er tekin en ég er sannfærður um það að sameining yrði öllum til hagsbóta. Starfsemi einstakra félaga þyrfti ekkert að breytast og það væri einfaldlega undir þeim sjálfum komið hvort þau héldu sínu striki. Fyrir marga er þetta hins vegar mikið tilfinningamál og ég held að hlutirnir strandi aðalega þar. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.