Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2000, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.12.2000, Blaðsíða 19
etta hefur svo sannarlega verið ár Venus Williams. Hún vann 32 leiki í röð og á því tímabili sigraði hún meðal annars Wimbledon- mótið, U.S. Open og gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Hún bætti einnig öðru gulli við þegar hún vann tvíliðaleikinn ásamt systur sinni Serenu Williams. „Ég þurfti að gera þetta fyrir mig. Ekki til að segja að ég hafi verið best heldur til að fá þessa titla, koma þeim í skápinn og sjá árangur erfiðinsins." Venus og systir hennar eru ekki komnar af ríkum foreldrum en pabbi þeirra ákvað fljótt að gera stelpurnar sínar að góðum tennisspilurum. „Auðvitað langaði okkur stundum að gera eitthvað annað en að æfa á tennisvellinum. Við æfðurn nánast alla daga og marga klukkutíma á dag, ár eftir ár. Við lögðum rnikið á okkur til að verða bestar og ég held að nú séum við að uppskera eins og við sáðurn." Venus þakkar pabba sínum fyrir að hafa haldið þeim systrum á réttri braut. „Það er auðvelt að koma sér í slæman félagsskap og það þarf oft lítið til til að villast af leið. íþróttir og annað félagsstarf er mikil- vægur þáttur í lífi unglinga og heldur þeim yfirleitt frá vímuefnum og óheilbrigðu lífi. Venus þurfti nokkrum sinnum á árinu að slá systur sína út á leiðinni að gullinu og stundum var hún spurð að því hvort hún gæti enn verið vinkona systur sinnar eftir að hafa sigrað hana. „Það er auðvitað alveg fáránlega spurning. Serena hefur unnið mig en ég hef kannski unnið hana á stærri mótum. Ég fagna aldrei þegar ég vinn Serenu og við erum alveg jafn góðar vinkonur að leik loknum hvernig sem hann endar. Vinátta okkar snýst ekki um það hvor vinnur fleiri leiki. Venus átti við meiðsli að stríða seinni hluta ársins 2000 og tók ekki þátt í mótum undir lok ársins. „Það var búið að vera mikið álag á mér og það hlaut eitthvað að gefa eftir. Meiðslin eru ekkert alvarleg en ég er ung og á eftir að leika meðal þeirra bestu í mörg ár. Þess vegna ákvað ég að taka því rólega seinni hluta þessa árs og ná mér góðri af meiðslunum." UTAN VALLAR Venus hefur ferðast um allan heim en segist ekki hafa mikin tíma til að skoða sig um. „Ég mun ferðast um heiminn og skoða hann þegar ferlinum lýkur. Þótt maður ferðist um allan heim til að keppa þá sér maður bara flugvelli og tennisvelli. Ferðalögin snúast öll um að koma sér í rétt form fyrir leikinn og þess vegna er ekki hægt að vera að ferðast um og fara í skoðunaferðir." Venus segist hafa vitað lítið um Evrópu þegar hún var að alast upp en segist þó hafa heyrt um Island. „Það læra flestir í skóla að á íslandi sé heitt en á Grænlandi sé kalt og það er í rauninni það eina sem ég get sagt þér um ísland. Auðvitað væri spennandi að koma þangað en ég sé það nú ekki gerast á næstu árum. Ég hef aldrei heyrt um tennisspilara frá íslandi en ef einhver ung og efnileg er þar á leiðinni gæti ég átt eftir að spila þar í framtíðinni. Hver veit?" sagði Venus að lokum og gerði blaðamanni ljóst að hún hefði ekki meiri tíma í þetta stutta spjall. Það verður gaman að fylgjast með henni og systur hennar á næstu árum. Garðabær VINALÍNA RAUÐA KROSSINS Við æfðum nánast alla daga og marga klukkutíma á dag, ár eftir ár...

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.