Skinfaxi - 01.12.2000, Page 9
Björn Ármann Ólafsson,
formaður UÍA, er hræddur
um að félögin muni tapa
tekjum komi til sameiningar
ÍSÍ og UMFÍ.
Á að sameina UMFÍ og ÍSÍ ?
Eins og mál standa í dag er ekkert sem mælir
með sameiningu þessara aðila eins og það
horfir við mér sem formanns UÍA. Það kemur
heldur ekkert fram í þeirri skýrslu sem liggur
fyrir frá ÍSÍ sem bendir til þess að þetta sé
vænn kostur fyrir mitt samband.
Af hverju ekki ?
Allar aðstæður benda til þess að sameining
rnuni skaða UÍA félagslega og fjárhagslega.
Ekki hefur verið sýnt fram á hvernig eigi að
halda uppi því starfi sem UMFI heldu uppi.
Hvaða áhrif þetta mundi hafa á sjálfboðastarf
er líka óljóst. Og síðast en ekki síst þá liggur
fyrir að helmingur af þeim tekjum sem UIA
hefur frá hreyfingunni kemur frá UMFI og ekki
hefur verið sýnt fram á að sá reikningur verði
jafnaðar eða skilað með plús ef sameina ætti
UMFÍ og ÍSÍ.
mynd
Hildur Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri
Ungmennasambands Eyjafjarðar,
telur það geta orðið endalok
grasrótarinnar sameinist UMFÍ og
ÍSÍ.
Það er skoðun mín að ef til sameingar UMFÍ og ÍSÍ
kemur verði það endalok grasrótarinnar. Astæður
eru margar en til dæmis má nefna að mörg smærri
ungmennafélög myndu lognast út af ef sá styrkur
sem lottótekjur eru hyrfu. Mér finnst umræðan
fyrst og fremst snúast um það að ná þeim
lottótekjum sem UMFÍ úthlutar og nota þær í
eitthvað „gáfulegra" en gert er í dag að mati
sameiningarsinna. Enda er það eitt atriði sem
kemur fram í skýrslu Deloitte & Touch um rök með
sameiningu samtakanna að lottópeningarnir
dreifist of víða og verði að litlu gagni.
Eru þessi skilaboð ekki nokkuð skýr eða hvað? Að
peningunum sé betur varið í annað en að styrkja og
styðja lítil félög eins og UMFI er m.a. að gera.
Megi UMFI hafa frið til að starfa áfram í óbreyttri
mynd að ræktun lýðs og lands.