Skinfaxi - 01.12.2000, Page 26
Ungmennafélaginn
Eyjólfur Sverrisson er
án efa einn
sigursælasti
atvinnumaður okkar
Islendinga. Hann hefur
aldrei leikið í efstu
deild hér heima á
íslandi en hann lék
með 2. deildarliði
Tindastóls árið áður en
hann fór til Stuttgart.
Frá þeim tíma hefur
hann orðið meistari
með tveimur liðum í
tveimur löndum og á
sama tíma verið
lykilmaður í landsliði
okkar íslendinga.
Fjögur mörk...
Þrátt fyrir að Eyjólfur hafi verið lykilmaður í liði 2.
deildarliði Tindastóls var það líklega ekki árangur
hans þar sem kveikti áhuga Þýska stórliðsins
Stuttgart á honum. Það var árið 1989 sem
Stuttgart buðu Eyjólfi að koma og leika með þeim
en á þessum tíma lék Asgeir Sigurvinsson stórt
hlutverk hjá liðinu. Eyjólfur skoraði þetta ár
fjögur mörk í U-21 árs landsleik á móti Finnum og
líklega hafa þau mörk átt stóran þátt í 11 ára
glæsilegum ferli Eyjólfs í heimi atvinnumennsk-
unnar.
Byrjaði vel
Eyjólfur fékk ekki mikið að spreyta sig til að byrja
með hjá Stuttgart og margir voru á því að ferill
hans í þessari sterku deild yrði ansi stuttur. A
þessum tíma lék Eyjólfur í stöðu framherja og eins
og menn vita eiga þeir að skora mörk. Þjálfari
Stuttgart þurfti ekki að bíða lengi eftir því að
Eyjólfur opnaði markareikning sinn hjá félaginu.
Hann kom inn á sínum fyrsta leik, sem var á móti
Nurnberg, þegar stutt var eftir af leiknum og með
sinni fyrstu snertingu skallaði hann boltann í
netið eftir hornspyrnu frá Asgeiri Sigurvinssyni.
Ekki slæm byrjun það.
Meistari
Eyjólfur hefur náð þeim
ótrúlega áfanga að verða
meistari með tveimur liðum frá
tveimur löndum. Eina sem
þessir meistaratitlar eiga
sameiginlegt er að Eyjóflur lék
með liðinu undir stjórn sama
þjálfarans. Christoph Daum var
einmitt þjálfari Stuttgart árið
1992 þegar Eyjólfur og félagar
urðu Þýskalandsmeistarar og
hann fékk hann til liðs við
Besiktas frá Tyrklandi og saman
urðu þeir Tyrklandsmeistarar.
Frá þeim tíma hefur Eyjólfur
leikið með þýska liðinu Herthu
Berlín sem hefur undanfarin ár
komið sér fyrir meðal bestu liða
Þýskalands.
Landsliðið
Eyjólfur hefur á undanförnum
árum verið lykilmaður íslenska
landsliðsins og er í dag fyrirliði
liðsins. Hann hefur sýnt það að
hann getur leikið nánast allar
stöður á vellinum og hefur þar
af leiðandi mikinn skilning á
leiknum. Hann var einn af
aðalmönnum liðs Guðjóns
Þórðarsonar sem meðal annars
náði jafntefli við Heimsmeistara
Frakka hér á Laugardalsvelli.
Eyjóflur hefur ekki hugsað sér
að vera mikið lengur í atvinnu-
mennskunni og hver veit nema
hann komi þá heim og leiki
loksins í efstu deild á fslandi.
Ungmennafélaginn Eyjólfur
hefur aldrei leikið með liði ■
efstu deild hér á íslandi