Skinfaxi - 01.08.2001, Síða 7
Þatt í þjóðmálabaráttunni með nýjum hætti og þannig varð
verkefnið "Eflum íslenskt" til. Þegar ungmennafélagar efndu til
Þjóðarátaks til eflingar íslenskrar framleiðslu og vöktu menn til
vitundar um það að allir hafa áhrif ef þeir vilja, og
samtakamátturinn getur flutt fjöll. í þessu tilefni var efnt til
hjólreiðaferðar hringinn í kring um landið og tóku þátt í henni ef ég
man rétt á fjórða þúsund ungmennafélagar. Þetta átak vakti
verulega athygli og hafði áhrif í þá átt sem ætlast var til. Þetta vakti
einnig athygli á ungmennafélagshreyfingunni, samtakamætti
hennar og afli. Pálmi hafði mikinn áhuga á erlendum vinafélögum
UMFÍ og samskiptum við þau. Þetta eru fyrst og fremst
hngmennafélögin á hinum Norðurlöndunum og önnur skyld æsku-
iýðsfélög, en þau hafa með sér samtök NSU sem kalla má
Ungmennasamband Norðurlandanna. Pálmi var atkvæðamikill á
Þessum vettvangi og sat lengi í stjórn NSU. Mest hafa þessi
samskipti verið við dönsku félögin, Hafsteinn Þorvaldsson hratt af
stað uppstokkun á þessu með nýju starfsliði fljótlega eftir að hann
tók við stjórnartaumunum 1969. Pálmi kom hins vegar með nýjan
tón í þessi samskipti og naut þar m.a. góðrar kunnáttu í norður-
iandamálunum. Þannig urðu samskipti Pálma við þessa aðila að
Persónulegri vináttu og tengslum milli fjölskyldna á annan hátt en
aður. Á þessum vettvangi var hann einmitt að vinna fyrir UMFÍ
ásamt Stellu, síðustu dagana sem hann lifði. Síðasta stóra málið
sem Pálmi beitti sér fyrir var að skipuleggja starf eldri ungmenna-
félaga til þátttöku í ýmsum íþróttagreinum bæði hefðbundnum og
eins ýmsum sem hann vildi bæta við svo allir fyndu eitthvað við sitt
hæfi og getu. Hann gekk ötull til verks eins og jafnan áður og var
einmitt að kynna þessa starfssemi á 23. landsmóti UMFÍ á
Egilsstöðum 12. til 15 júlí sl. Þar fór hann fyrir myndarlegum hóp
eldri ungmennafélaga í hópgöngu íþróttafólksins inn á hinn fagra
leikvang þeirra austanmanna og hefði þá engann grunað að
skammt væri til kveðjustundar.
^itt af megináhugamálum Pálma var landið, fegurð þess og
háttúra og vilji hans og ásetningur að njóta alls þessa og gefa
óðrum hlutdeild í því með sér. Þrastaskógur, landgræðslan og
háttúruvernd hverskonar var angi af þessu. Þau hjónin stunduðu
hiikið útiveru og fjallgöngur og ég held að þaðan hafi sprottið
^e9mynd sem Pálmi kynnti og kom í framkvæmd, en það verkefni
^ólluðum við "Göngudag fjölskyldunnar" stórmerkilegt verkefni þar
Sem ungmennafélögin víðs vegar um landið völdu gönguleiðir,
°ku saman um þær upplýsingar s.s. örnefni, þjóðsögur tengdar
Peim, eitthvað um náttúruna o.s.frv. Úr þessu varð til safn
hherkilegra leiðarlýsinga sem vel þarf að gæta og safna saman, ef
Það hefur ekki verið gert nú þegar.
. etta eru fá orð um mikið starf og merkan mann, en svo verður
man í stuttum minningar og kveðjuskrifum. Það verða heldur ekki
'k skrif sem halda minningu Pálma á lofti, það verða verk hans,
Þersónuleiki og hlýtt viðmót sem verða varanleg í hugum okkar
. aa hans. Með Pálma er genginn einn merkasti forustumaður
ensku ungmennafélaganna á seinni hluta tuttugust aldarinnar.
ait mi var a|drei mikið fyrir einleik í sínu félagsstarfi og því var það
af liðið hans, hópurinn hans, sem vann afrekin þegar hann
sagði frá. Þeir sem næst honum stóðu og með honum unnu,
ungmennafélagarnir og margir fleiri sáu þetta þó e.t.v. í öðru Ijósi.
Þannig var Pálma margvíslegur sómi sýndur fyrir störf sín,
heiðursfélagaorða UMFÍ ásamt fjölmörgum öðrum viðurkenn-
ingum af vettvangi ungmennafélaganna og landssamtökum íþrótt-
amanna, hina íslensku fálkaorðu og markvíslegar viðurkenningar
erlendis frá og svo mætti lengi telja.
Þetta mun þó ekki vera það sem Pálma þykir mest um vert, þegar
hann lítur yfir sviðið og metur hlutina. Hann mun telja helstu afrek
sín í því að hafa gefið þúsundum ungmenna um allt land tækifæri
til að taka þátt í hollu uppbyggilegu tómstundastarfi, og þannig
stuðlað að heilbrigðara og betra samfélagi. Hann mun gleðjast yfir
því að hans hjartans mál í lífinu, ungmennagélagsstarfið hefur eflst
og dafnað síðustu áratugina og að hann á stóran þátt í þeirri
þróun. Við ungmennafélagarnir, vinir hans og samstarfsmenn og
líka allir hinir sem ekki þekktu Pálma, en njóta verka hans á einn
eða anna hátt, munum því sýna minningu hans mestan sóma með
því að standa vörð um það sem honum var helgast, með því að
efla UMFÍ og ungmennafélagsstarfið um allt land, með því að
svara hverri árás á þetta starf með nýrri sókn.
Ungmennafélag íslands, Skinfaxi, samstarfsmenn og vinir Pálma
senda Stellu og hugheilar samúðarkveðjur og þakka Stellu
fjölskyldunni fyrir þáttöku og stuðning í öllu því sem Pálmi vann
að fyrir ungmennafélagshugsjónina.
Sigurður Geirdal
Kveðjuorð
Að rnorgni 22. júlí sl. barst sú harmfregn að um nóttina hefði
Pálmi Gíslason f.v. formaður UMFÍ látist af slysförum.
Pálmi fór snemma að vinna að málefnum Ungmennafélags-
hreyfingarinnar, fyrst í sinni heimabyggð og síðan að málefnum
landssamtakanna sem hann vann að allt til dánardags.
Pálmi var alla tíð mikill áhugamaður um Landsmót UMFI og nú
síöast vann hann að eflingu starfs eldri ungmennafélaga og var
einn af aðalhvatamönnum um þátttöku þeirra á 23. Landmóti
UMFÍ sem haldið var á Égilsstöðum nú í sumar.
Pálmi var formaður UMFÍ frá 1979 ti! 1993 eða í 14 ár og var sá
tírni mikið blómaskeið í sögu samtakanna. Pálmi gegndi for-
mennskunni af mikilli alúö og trúmennsku, sem og öðrum þeim
trúnarðarstörfuni sem honum voru falin fyrir hönd UMFI.
Of langt máli yrði að telja upp öll þau trúnaðarstörf sem Pálmi
gegndi fyrir UMFI en ég nefni hér tvennt.
Arið 1977 var Pálmi fenginn til að gegna formennsku í
húsakaupanefnd UMFI og tókst þeirri nefnd undir hans forystu
að fjármagna húsakaupin að Mjölnisholti 14 á ótrúlega
skömmum tíma, en það var þá fyrst sem UMFÍ eignaðist
húsnæði undir starfsemi sína.
Fljótlega eftir að Pálmi tók við formennsku UMFÍ var hann
kosinn í stjórn NSU sem eru samtök norrænna ungmennafélaga
og sat hann í þeirri stjórn fyrir UMFÍ allt til dánardags, Það er
ekki síst fyrir hans tilstilli hve góð sambönd UMFÍ hefur við
systursamtök sín á hinum Norðurlöndunum.
Pálmi var kjörinn heiðursfélagi og sæmdur heiðursfélagakrossi
UMFÍ árið 1997 í 90 ára afmælishófi samtakanna.
Fyrir hönd Ungmennafélags Islands þakka ég Pálma fyrir hans
óeigingjörnu störf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar. Þá
votta ég eftirlifandi eiginkonu Pálma, Stellu Guðmundsdóttur
og öðrum aðstandendum innilegrar samúðar.
Þórir Jónsson
formaður UMFÍ
7