Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Page 1
5]ÓmRHHRBLFiÐlÐ U1K1H5UR ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FIS KIM A N N AS A M B A N D ÍSLANDS II. árg., 5.-6. tbl. ReyUjavik, marz 1940 Ihlutunarréttur sjómanna Það er vitað, að mikil óánægja hefir ríkt meðal sjómanna út af skipun yfirstjórnar síldarmálanna í landinu. Hefir þeim, að von- um, þótt íhlutunarréttur sinn næsta lítill þar, samanborið við þann mikla hlut, sem þem eiga þar að máli að öðru leyti. Eins og þessum málum er skipað nú, má segja, að sá aðilinn, sem að réttu lagi ætti að hafa þar langmesta íhlutunina, — en það eru sjómennirnir — hafi eiginiega ekkert að segja. Til dæmis eiga sjómenn engan fulltrúa í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins. Eins og allir vita, er stjórn þessa fyrirtækis — sem í raun réttri er eign sjómanna og út- gerðarmanna í landinu og eingöngu borið uppi af þeim — skipuð fimm mönnum, öll- um kosnum af Alþingi. Þeir, sem allra hags- munanna hafa að gæta í sambandi við fyrir- tækið, hafa engan fhiutunarrétt um það, hvern- ig því er stjórnað eða hvernig starfsemi þess er háttað. Þessu fyrirkomulagi verður að breyta í það horf, að eitthvert samræmi verði milli hags- muna aðilanna, sem að fyrirtækinu standa og réttar þeirra til íhlutunar um stjórn þess og starfsemi. I síðasta blaði ,,Víkings“ birtist tillaga, viðvíkjandi lausn þessa máls, sem fundur, er skipstjórafélagið Ægir á Siglufirði hélt í desember síðastl. með sjómönnum og út- gerðarmönnum, samþykkti í einu hljóði. Er til- lagan þannig, að stjórn síldarverksmiðjanna verði skipuð þrem mönnum, einum frá sjó- mönnum, sem skipta við verksmiðjurnar, ein- um frá útgerðarmönnum, sem skipta við verk- smiðjurnar, og svo loks þeim þriðja, er ríkis- stjórnin skipi. — Virðist þessi tillaga Sigl- firðinganna fela í sér hina einu eðlilegu og réttu lausn málsins, þó að hinu háa Alþingi hafi enn ekki sýnzt rétt að taka hana til greina og breyta lögum verksmiðjanna þann- ig, að þau verði nokkurnveginn rétt mynd af því lýðræði, sem á, og verður að ríkja í þessu efni, til þess að réttlætinu verði fullnægt og allir geti vel við unað. Um stjói’n saltsíldarsölunnar (Síldarút- vegsnefnd) má segja, að nokkuð líku máli gegni og um síldai'verksmiðjui'nar. íhlutunar- réttur sjómanna er þar ekki neitt svipaður því, sem vera ætti, samanboi'ið við hagsmunaaf- stöðu þeirra. Lýðræðiixu er ekki hossað hátt þar fremur en í skipun síldarverksmiðj u- stjórnarinnar. Hafa óánægjuraddir sjómanna, sem fram hafa komið þessu viðvíkjaixdi, lítinn grunn- hljóm fengið á ,,hærri stöðum“. — En þessar í'addir verða ekki þaggaðar niður með tóm- læti og axlayptingum. Það verður áfram. haldandi að því unnið að fá þessum málum þann veg skipað, að sjómennii’nir geti við un- að. — Væi'i æskilegt að sjómenn sendu blað- inu greinar um þetta mál og kæmu fram með tillögur því til úrlausnai'. Jafnréiti og lýðræði í þessum málum, er sú krafa, sem ekki verður hvikað frá unz upp- fyllt verður.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.