Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 3
hreppti garðinn á leið sinni frá Siglufirði fyrir Hornbjarg. Skipið hvaff með allri áhöfn. — Margar ágizkanir komu fram um tildrög og orsök hinna hörmulega endaloka skips og á- hafnar, því fátt segir af einum, en skip, sem vantar loftskeyti er algjörlega einangrað á hafinu. Það er slitið úr sambandi við umheim. inn og sigiir blindandi. Á Hornströndum er gott undir bú og fanga- sælt mjög; allskyns góðfiskar í sjó, æðarvarp, eggjataka, seladráp ogtrjáreki. Iíér eru nefni- lega úti fyrir ströndinni straumar stórir. — ,,Irminger“-straumurinn, sem er angi af Golf- straumnum, kemur hingað frá Mexicóflóa og flytur með sér kork og mahogni. Hann virðist hafa hér yfirhöndina í suðvestlægum áttum, en þegar blæs á austan, þá er það hinn kaldi straumur, Pólstraumurinn, sem virðist ráða ríkjum. Nokkuð er það, að skipum, sem sigla fyrir Strandirnar, þýðir ekki að fletta upp í almanakinu og taka þaðan út úr flóðtöflum stefnu straums og hraða, þótt taka beri það þó með í reikninginn. Skógarhöggsmennirnir í Norður-Rússlandi og Síberíu, missa stundum ógrynni af timbri út úr höndum sér, þegar þeir fleyta þessu nið- ur árnar á leið til sjávar. Þetta timbur og stór- viði berst síðan fyrir straumi og vindi vítt um höfin og fyllast þá stundum allar víkur á Ströndum af rekavið. Á Ströndum er Ófeigs- fjörður, þar býr stórbóndinn Pétur Guðmunds- son. Á Ingólfsfirði býr Guðjón hreppstjóri á Eyri, sem mörgum er að góðu kunnur. Þar eru hafskipabryggjur og þar er söltuð síld á sumr- in. Fjörðurinn er hin öruggasta höfn þegar inn á hann er komið, en aðgengilegur er hann ekki. Úti fyrir fjarðarmynninu er fullt af boð- um og skerjum, sem gerir siglingar á fjörðinn mjög erfiðar í myrkri. Næsti fjörður að austan er Norðurfjörður, þar er engin bryggja og engin síldarsöltun, en þar er kaupfélag og tals- verð verzlun. Mjög er þarna misvindasamt vegna þess hve fjörðurinn er umluktur háum fjöllum. Hinar snöggu vindkviður koma allt í einu eins og byssuskot og ætla þá allt um koll að keyra. Síðan dettur allt í dúnalogn jafn skyndilega. Hér var það, sem Önundur tréfót- ur tók sér bólfestu. Hann hefir haft glöggt Djúpvík í Reykjarfirði. auga fyrir góðum landkostum gamli maðurinn og ekki látið stórhrikalega náttúru eða strjál- býli aftra sér frá að setjast hér að. Ef hann gæti nú litið upp úr gröf sinni, þá þyrfti hann ekki að kvarta yfir neinu í sambandi við sigl- ingaleiðir til Norðurfjarðar, þar hefir ekki verið hreyft við neinu með litla fingri. Það hefði nú mátt ætla að reglubundnar skipaferð- ir til Norðurfjarðar hefðu verið látnar haldast í hendur við bættar skipaleiðir þangað, en það er nú eitthvað annað. Ljósið í baðstofuglugga Ásgeirs bónda Guðmundssonar er það eina, sem leiðbeinir skipum inn á Norðurfjörð. — Næsti fjörður fyrir sunnan og austan er Reykj- arfjörður. Utanvert við fjörðinn að norðan er Gjögur, gömul og fræg bækistöð hákarlavík- inga. Þar býr nú Jón Sveinsson. Þarna er v.ið- komustaður skipa. Hinumegin við fjörðinn, en innar, eru svokallaðar Kúvíkur, gamall verzl- unarstaður. Þar býr Karl Jensen kaupmaður. Dálítið innar í firðinum er Djúpavík. Þar hefir Il.f. Djúpavík bækistöð sína, þar er hafskipa- bryggja, nýtízku síldarverksmiðja og þar er söltuð síld. Þegar síldveiðarnar byrja og sunn- lenzku stúlkurnar koma, þá lifnar yfir flestu á Djúpavík. Þá iðar allt af lífi og fjöri. Gamla „Suðurlandið“, sem lengi þreytti göngur milli Reykjavíkur og Borgarness, var um tíma þarna notað fyrir íbúðir. Milljónum af verðmætum er ausið upp úr sjónum á ör- skömmum tíma meðan síldin veður. Þá er það, 3 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.