Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Síða 6
BJÖRN JÓNSSON veðurfræðingur: Um veðurspár Inngangur. Veðurfræðin er ein yngsta vísindagrein nú- tímans. Árið 1878 var fyrst stofnað til alþjóð- legrar samvinnu veðurfræðinga, en til þess tíma höfðu litlar tilraunir verið gerðar í þá átt að segja fyrir um veður á vísindalegan hátt. Veðurfræðin fékkst aðallega við að safna skýrslum frá veðurathugunarstöðvum og vinna úr þeim meðaltöl. Þessi meðaltöl geta haft all- mikla þýðingu í sambandi við ýmsan atvinnu- rekstur, samgöngur o. fl., en eru að mestu leyti gagnslaus við daglegar veðurspár. í lok 19. aldar var byrjað að teikna veður- kort. Veðurathugunum var daglega safnað saman símleiðis frá eins mörgum stöðum og unnt var og þær merktar á landabréf, svo að hægt var í fljótu bragði að gera sér grein fyrir veðurlaginu og þeim breytingum, sem á því urðu frá degi til dags. Og síðan hófust tilraunir til að sjá þessar breytingar fyrir. í fyrstu var tilgangurinn eingöngu sá, að sjá fyrir storma eða skaðaveður, einkum vegna sjómanna. — Þetta bar þegar nokkurn árangur. En brátt kom í ljós, að ekki var nóg að teikna eitt kort á dag, og ault þess þurftu að nást veðurathug- anir frá sem flestum stöðum og löndum. En símasamböndin voru í þá daga — og eru raun- ar enn — allsendis ófullnægjandi til að annast flutning svo margra skeyta. En stærsti hæng- urinn var þó sá, a. m. k. fyrir Vestur-Evrópu, að flestir stormar koma vestan af Atlants- hafi, og þaðan var engin skeyti að fá. En þá koma loftskeytin til sögunnar og ráða í senn bót á báðum þessum erfiðleikum. Er þar stigið eitt hið mesta framfaraspor á sviði veð. urspánna. Jafnframt þessu höfðu augu manna lokist upp fyrir því, að það eru ekki sjómenn einir, sem not geta haft af veðurspám. Átti heimsstyrjöldin 1914—1918 mestan þátt í því. Og á þeim árum urðu geysimiklar framfarir í allri tækni veðurfræðinnar, þótt alþjóða sam- vinna lægi alveg niðri. Eftir stríðið var hún tekin upp á ný, og síðan hefir þessari vísindagrein fleygt fram. Veður- spár eru nú gerðar um allan heim og sendar út oft á sólaihring. Þær ná ekki einungis til skaðaveðra, eins og í byrjun, heldur til allra þátta veðurlagsins. Og þær eru ekki bundnar við jörðina eina, heldur og við hærri loftlög, nokkra kílómetra frá jörðu, vegna flugferð- anna. Og það er ekki sjómaðurinn einn, sem hlustar á veðurspána, heldur einnig bónd- inn, sem er að þurrka heyið eða láta út roll- urnar; ferðamaðurinn, sem vill vita, hvort hann á að fara í regnkápu eða vetrarfrakka; verkstjórinn, sem er í vafa um, hvort hann á að láta breiða fiskinn; húsmóðirin, sem veit ekki, hvort óhætt er að hengja út þvottinn eða viðra húsgögnin; Reyk.javíkurstúlkan, sem spyr hvort hún eigi að taka með sér regnhlíf; múr- arinn vegna frosthættunnar; og þá má ekki gleyma flugmanninum, sem er gjörsamlega ósjálfbjarga án veðurfregnanna. Og þannig mætti lengi telja. Óvíða í heiminum hafa veðurspár eins mik'la þýðingu og hér á landi, þar sem tveir aðalat- vinnuvegir landsins eiga svo mikið undir veðr- inu. En nytsemi þeirra er þó nokkuð takmörk- uð, vegna þess að þær reynast eigi ávallt rétt- ar. Geta þær í sumum tilfellum orðið til tjóns, beint eða óbeint, t. d. þegar bátur bíður tjón á veiðarfærum eða týnist í stormi, sem skellur á að óvörum. Eða þá að hann missir af afla, vegna þess að veðurspáin gerði ráð fyrir stormi, sem ekkert varð úr. Það er eðlilegt og mannlegt, að slíkar misfellur valdi mönnum VÍKINGUR 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.