Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Qupperneq 9
(iuðmunaur nær.n^sson.
Tvjartan Guonason.
Haraldur Jónsson.
þeir sig þá vera komna suður undir Röst. Og
nú rak bátinn meira undan straumi og vindi
heldur en á vannst með seglunum.
Þegar formaður sá Reykjanesvita lét hann
leggja bátnum yfir og tók ,,slag“ austur um
til þess enn að freista þess að komast nær
landi og fá legubotn. Hvassviðri var og gekk á
með miklum hryðjum. Þessi ,,slagur“ stóð í
tvær klukkustundir. Lét formaður þá lóða og
reyndist dýpið þá enn meira en áður. Var nú
bátnum enn lagt yfir til þess að reyna að ná
nær landi. Sást þá Reykjanesviti aftur sem
snöggvast, en nú var báturinn kominn sunnar
og' dýpra en áður. Var þá lagt yfir að nýju
og tekinn „slagur“ norður um og sá ,,slagur“
látinn standa fram á næsta dag. Var þá lóðað
og fannst ekki botn. Þótti bátsverjum nú sýnt,
að ekki væri annað til úrræða en reyna að
halda sér við, svo að bátinn ræki beint í vestur
undan vindi og sem styttzt frá landi.
Þannig leið hver dagurinn af öðrum, þriðju-
dagur, miðvikudagur, fimmtudagur, föstudag-
ur, laugardagur, sunnudagur og mánudagur
— allt fram á þriðjdag 27. febrúar. Alltaf
hélzt sama austan áttin og gekk 4 með bylj-
um öðru hvoru. Alla þessa daga var ,,slagur“
látinn standa til norðausturs. Ætla bátsverjar
að bátinn hafi drifið lengst 120 mílur undan
landi.
Áður en lengra er komið sögu þykir rétt að
L