Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 13
ÞORGRÍMUR SVEINSSON:
Fiskiganga
Rétt eftir miðja 19. öld réri faðir minn frá
Hofi í Garði. Sá bær er rétt innan við Garð-
skaga. Hann réri aðeins við annan mann eins
og þá var siður þar um slóðir, nema ef farið
var í Miðnessjó fyrri hluta vertíðar. Þá voru
höfð stærri skip og menn sameinuðust um þau.
Þessa vertíð, er hér um getur, var fiskileysi.
Fékkst fiskur helzt fram á Miðum — rúman
klukkutíma róður frá Hofi.
Einn dag í blíðskaparveðri, rétt eftir sumar-
mál, réri faðir minn ekki fyrr einn morgun en
allir voru komnir fram á mið. Var það þó ekki
venjulegt, því að hann var árvakur mjög. Þeg-
ar hann kemur fram úr vörinni, lætur hann lesa
sjóferðabæn eins og venja var. Meðan á bæn-
inni stendur, verður honum litið út fyrir borð-
stokkinn. Sér hann þá hvar fisktorfa syndir
með botninum og heldur vestur með landi. Sneru
allir fiskarnir í sömu átt og voru eins þétt sam-
an eins og fjárhópur er þéttastur í rétt. Hætta
þeir nú að róa, ljúka við bænina, en renna síð-
an færum og fá nógan fisk. Þarna þríhlóðu þeir
um daginn, en hinir, sem fyrr fóru, fengu ekk-
ert.
Daginn eftir hitti faðir minn torfuna út af
Kirkjubólshverfinu fyrir sunnan Garðskaga.
Þriðja daginn hitti hann á torfuna á miðinu:
Keilir um Hvalsnes.
Fjórða daginn gerði vont veður, enda varla
sækjandi lengra á tveggja manna fari.
Eftir því, sem faðir minn skýrði mér frá, var
stefna göngunnar sunnarlega á Eldeyjarbanka.
Síðan sönnun hefir fengizt fyrir því, að fiskuf-
inn fer til Grænlands og hingað aftur, hefir mér
verið að detta í hug, hvort þetta væri ekki ein-
mitt leiðin, sem hann fer. Það er margt, sem
mælir með því, að svo muni vera:
1) Fiskur kemur í Miðnessjó og á Eldeyjar-
banka langfyrst á vertíðinni, eða þegar í
janúar.
2) Merktir öngultaumar hafa fundizt seinni
hluta vertíðar á Eldeyjarbanka, og hafa
þeir verið af bátum frá Akranesi, sem veið-
ar hafa stundað í Faxaflóa.
3) í mínu ungdæmi í Garðinum var talað um
tvær fiskigöngur: sunnangöngu og vestan-
göngu. Sunnangangan kom með landi aust-
an að og fylgdi henni oftast loðna. Vestan-
gangan kom úr hafi eða um Faxaflóa og
fylgdi henni jafnan stórfiski. Æfinlega
fiskaðist vel undir Jökli, þegar þessi ganga
fór um.
Sjálfsagt mætti benda á fleira, er styddi þessa
skoðun, en ég læt þetta nægja, enda eiga þetta
að skoðast sem leikmannsþankar og ekki annað.
Þorgr. Sveinsson.
að bókum
Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
13
VÍKINGUR