Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Síða 16
Áhöfnin
stórskipi
inni um
af hinu
„Colum
borð í
brennandi og sökkvandi
bus‘l í björgunarbátunum á leið-
ameríska beitiskipið „Tuscaloosa".
Hinn 14. desember síðastliðinn sigldi gufuskipið ,,Columbus“ — þriðja stærsta skip
þýzka verzlunarskipaflotans — út úr höfninni í Vera-Cruz í Suður-Ameríku, en þar hafði
það legið frá því 14. september og biðið færis að komast heim til Þýzkalands — fram hjú
herskipum Breta, sem þarna voru hvarvetna á vakki. — Á skipinu var einungis áhöfn þess,
578 menn, því öllum farþegum hafði verið skipað í land í Havana. — Amerískt herskip,
sem var að hlutleysisgæzlu, hafði sífellt auga á skipinu á siglingu þess norður eftir.
Hinn 19. desember, þegar „Columbus“ var staddur út undan Cape May, N. Y., kom
brezkur tundurspillir í augsýn og gaf stöðvunarmerki með skotum, og þar sem „Columb -
us“ var óvopnaður og 12 mílum ganghægari en tundurspillirinn, þá var strax auðsætt að
undankoma var óhugsandi. — Skipstjórinn á „Columbus“ lét þá kalla skipshöfnina á þil-
far og skipaði henni í björgunarbátana. En áður en allir færu frá borði lét hann opna
botnkrana skipsins og jafnframt kveikja í bví, svo að víst væri að það félli ekki í hendur
óvinanna.
Allri skipshöfninni af „Columbus“ — að undanteknum tveimur mönnum, sem ekki
höfðu vaknað, þegar kallað var í bátana ogfórust því með skipinu — var bjargað af ame-
ríska beitiskipinu „Tuscaloosa“ og flutt til New York.
VÍKINGUR
16