Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Qupperneq 18
Sjómenn hlutlausra hjóða fara ekki varhluta af ógnum sjófiert laóarins Frásögn norsks skipstjóra Frœndur vorir Norðmenn, munu vera sú siglingaþjóð- in, sem einna mest afhroð hefir orðið aö gjalda í yfir- standandi styrjöld, bœði á skipum og sjómönnum, vegna sjóhernaðaraðgerða ófriðarþjóðanna. — Hafa þeir frá því styrjöldin hófst misst fjölda skipa og sum með allri áhöfn. Flest hafa skipin farist með þeim hætti, að þau hafa rekist á tundurdufl — og sokkið á nokkrum mín- útum. Fyrir skömmu birti norska blaðið .„Tidens Tegn“ frá- sögn af einum slíkum atburði og er frásögnin að mestu leyti byggð á viðtali blaðsins við Harald Nyegaard skip- stjóra á flutningaskipinu „Manx“ frá Fredrikstad. — Rakst skipið á tundurdufl í Norðursjó og sökk á fáein- um mínútum. Af 19 manna áhöfn, sem á skipinu var, komust aðeins sex lífs af, fjórir þeirra héldu sér á kili annars björgunarbátsins í meira en 8 klukkustundir unz norska skipið „Leka“ bjargaði þeim, en tveir komust á björgunarfleka skipsins er það sökk, og var þeim bjargað af dönsku skipi. Frásögn norska skipstjórans, sem birt verður hjer á eftir í lauslegri þýðingu, bregður upp átakanlegri mynd af ógnum þe m, er sæfarendum hlutlausra þjóða stafar af hinum miskunnarlausu sjóhernaðaraðgerðum nútím- ans, jafnframt því, sem hún er glöggt dæmi þess ein- staka þreks og karlmennsku, sem sjómennirnir sýna í sínu „stríði“ við vosbúð og kulda og hverskonar hörm- ungar — í baráttunni upp á líf og dauða. Lagt af stað í síðustu ferðina. Nyegaard skipstjóra segist þannig frá: Við lögðum af stað frá West Hartlepool í Eng- landi síðari hluta sunnudagsins 7. janúar, hlaðnir kolum til Drammen í Noregi. — Þoka var á og illt skyggni. En við héldum hina venjulegu leið milli ensku strandarinnar og tundurduflabeltisins fyrir utan, og allt gekk vel, bæði á sunnudag og mánudag. Þegar við komum á móts við norðurenda Skotlands beygðum við til austurs, — þar sem við átt- um að vera komnir fram hjá enska tundur- duflasvæðinu — og tókum stefnu á Noreg. Og allt gekk eins og í sögu nokkra hríð. VÍKINGUE Ógæfan dynur yfir. Ég hafði staðið uppi allan tímann frá því við fórum frá Hartlepool, því að auk tundur- duflahættunnar hafði alltaf verið þoka. Á mánudagskvöldið fór ég niður og lagði mig fyrir, en fór auðvitað ekki af fötum. Mér var rétt að renna í brjóst, er að eyrum mér bárust ógurlegir brestir og brak og ég fann hvernig skipið nötraði allt og skal eins og það væri fest upp á þráð. Mér var auðvitað þegar Ijóst, að nú var ógæfan dunin yfir: Skipið hafði annað hvort lent á tundurufli eða orðið fyrir tundurskeyti. Það, sem ég svo blessun- arlega hafði umflúið allt gamla stríðið — því Tundurskeyti skotið á skip. 18

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.