Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 19
þá var ég alltaf á ferðinni — hafði nú hent mig. Ég þaut upp á þilfar og um leið og ég rak höfuðið út um dyrnar, sá ég sjóstrókana og allskonar brak þeytast langt upp fyrir siglutoppana — og ég varð þess var, að allur framhluti skipsins — allt aftur að framsiglu var horfinn. — Þegar þetta skeði var klukk- an hálf tvö á þriðjudagsnóttina. Annar stýrimaður var á stjórnpalli og svo einn háseti, sem stýrði. Auk þess höfðum við varðmann miðskips og annan í námunda við stjórnpallinn, því þegar siglt er á hættusvæð. inu er ekki hægt að hafa stafnvörð. Hann væri dauðans matur ef skipið rækist á tund- urdufl. Á augabragði var öll skipshöfnin komin á þilfar, nema 1. stýrimaður, hann minnist ég ekki að hafa séð. Svefnklefi hans var inn af setustofunni og er mjög líklegt að klefinn hafi undir eins fyllst af sjó og þrýst á hurð- ina, svo að hann hefir ekki getað opnað hana, en hurðin opnaðist inn, ellegar þá að sjálf sprengingin í skipinu hefir orðið honum að bana. Skipið kastaðist þegar á hliðina og sökk á 4—5 mínútum. ,,Manx“ kastaðist þegar á hliðina og byrj- aði samtímis að síga niður með afturendann á undan. Þegar við ætluðum að setja út björg- unarbátana reyndist það mjög erfitt, einkum stjórnborðsmegin, því að báturinn lá beinlínis á skipshliðinni. Með hinn bátinn gekk okkur betur. Loks náðum við báðum bátunum út- byrðis. Um það bil, sem báturinn var að kom- ast í sjóinn, fékk ég högg á höfuðið og missti meðvitund sem snöggvast. En á meðan ég var ,,fjarverandi“ hvolfdi öðrum björgunarbátn. um og sá ég, þegar ég komst til sjálfs mín aftur, mennina, sem í bátnum voru, á sundi skammt frá skipinu. „Manx“ stóð þá hjer um bil upp á endann, og mér skildist, að ætti ég að komast lífs af, þá yrði ég að reyna að synda frá skipinu, svo að ég sogaðist ekki niður með því. Og ég held að ég hafi aldrei synt jafn hratt um mína daga eins og ég gerði nú, til þess að komast að björgunarbátnum, sem rak á hvolfi kippkorn frá skipsflakinu. Að lokum náði ég í bátinn og komst á kjöl, en áður en ég hafði komið mér þar fyrir var skipið sokkið í hafið. Hins björgunarbátsins varð ég ekki fram- ar var, og ég sá heldur ekki neitt til björg- unarflekans, sem annar stýrimaður og einn hásetanna höfðu bjargað sér upp á. Það eina, sem ég sá, voru mennirnir, er komu syndandi í áttina til hins hvolfda björgunarbáts, og einn af öðrum náðu þeir honum, unz við voruni orðnir 8 alls, sem héngum þar á kili í nátt- myrkri, kulda og sjógangi. Af kulda og vosbúð fá mennirnir stífkrampa, missa taks á kjölnum hver af öðrum — og hverfa í hafið. Mér var það undir eins ljóst, að við mynd- um ekki, gegnvotir eins og við vorum og í þeim kulda, sem var, geta haldið okkur lengi á kjölnum. — Ég gerði þess vegna allt, sem hugsanlegt var, til að reyna að koma bátnum aftur á réttan kjöl. En það reyndist ómögu- legt, enda urðu sumir af mönnunum brátt svo illa á sig komnir, að þeir gátu lítið hjálpað til. Og ég skildi að það var einungis spurning um, hversu lengi þeir gætu haldið út. Að nokkrum klukkustundum liðnum fékk frostið og þreytan yfirhöndina og stífkrampinn lét heldur ekki lengi standa á sér — og einn eftir 10 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.