Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Síða 27
sama mánuði, og var sú björgun mjög rómuð
af þeim, sem á horfðu. Loks bjargaði Sveinn
Sæmundsson lögregluþjónn stúlku frá
drukknun við Grandagarðinn í Reykjavík.
Bjöngunarskipið „Sæbjörg“ hóf starfsemi
sína um miðjan janúarmánuð og starfaði nær
óslitið fram í miðjan september. Hér við Faxa-
flóa var skipið fram til vertíðarloka, en var
leigt ríkisstjórninni frá 20. maí og starfaði í
þjónustu hennar við gæzlu og annað, það sem
eftir var af úthaldstímanum. Á vertíðinni að-
stoðaði skipið 30 skip og báta og voru áhafnir
þeirra samtals 176 manns, þar með talin skips-
höfnin af „Hannesi ráðherra“, sem áður er
getið.-Yfir síldveiðitímann var skipið við Norð-
urland og aðstoðaði þar fjögur skip og báta
með samtals 44 manna áhöfnum. Á meðal
þeirra var skipshöfnin af vélskipinu „Unni“
frá Akureyri, sem brann úti fyrir Rauðunúp.
um hinn 29. ágúst, en „Sæbjörg“ tók skips-
höfnina eftir brunann og fór með hana til hafn-
ar. Ennfremur tók „Sæbjörg“ vélskipið „Dag-
nýju“ frá Siglufirði með bilaða vél úti á hafi
og dró það fullt af síld til Akureyrar. Samtals
aðstoðaði björgunarskipið því 34 skip á árinu
og voru áhafnir þeirra samtals 220 manns.
Enn er ótalin margvísleg aðstoð, sem varð-
skip ríkisins veittu allmörgum skipum og bát-
um, svo að árið var langt ofan við meðallag
hvað þetta snertir. Þá má segja að yfirstand-
andi ár hafi byrjað giftusamlega að þessu
leyti, því að eins og kunnugt er, bjargaðist
öll skipshöfnin — 62 manns — af þýzka skip-
inu „Bahia Blanca“ á síðustu stundu um borð i
togarann „Hafstein“ úti fyriir Vestfjörðum
hinn 10. janúar, en skipið sökk eftir að hafa
laskast í ís, nokkrum klukkustundum áður.
Skipskaðar urðu nokkrir á árinu og þ. á. m.
tveir allmiklir á okkar skipastól. Hinn fyrri
þegar b.v. „Hannes ráðherra“ strandaði og
hinn síðari þegar „Unnur“ brann eins og fyrr
var getið. Ennfremur strandaði v.b. „Björg-
vin“ frá Vestmannaeyjum við Reykjanes hinn
21. sept., en allmiklu varð bjargað úr strand-
inu, þ. á. m. vél skipsins, og loks fórust vél-
bátarnir „Þengill“ og ,,Inga“ eins og áður er
sagt. Stærð þessara tveggja síðasttöldu báta
var 7 og 8 smálestir, svo að alls höfum við
27
misst á árinu: 1 togara, 2 vélskip yfir 12 smá-
lestir og 2 vélbáta undir 12 smálestum.
Af erlendum skipum fórust hér við land: 1
enskur togari, „Mohican“ frá Hull, sem
strandaði á Rangársandi hinn 19. apríl, og 2
færeysk fiskiskip, „John Bull“, sem sökk eftir
árekstur við norskt síldveiðiskip hinn 20. ág.
á Skagafirði og „Anna“, sem brann á Þistil-
firði hinn 6. sept. Auk þess strandaði norskt
síldveiðiskip, „Lappen“, á Melrakkasléttu s.l.
sumar, en varðskipið „Ægir“ náði því út og dró
það til hafnar. Enginn erlendur maður fórst
hér við land á árinu svo vitað sé.
Meðlimatala Slysavarnafélagsins hefir
aldrei aukizt meir en á s.l. ári, því að þá voru
stofnaðar 22 nýjar deildir innan félagsins,
flestar fyrir forgöngu hinna sömu manna, sem
mestan ötulleik sýndu í því starfi árið áður,
en það voru þeir séra Jón Guðjónsson í Holti
undir Eyjafjöllum og félagar hans, sem skýrt
er frá í síðustu árbók félagsins. Erindreki fé-
lagsins, Jón Bergsveinsson, hefir að sjálfsögðu
einnig verið með í flestum þessara leiðangra.
Hinar nýstofnuðu deildir eru: 5 í V.-Skapta-
fellssýslu, 2 í Rangárvallasýslu, 8 í Árnessýslu,
5 í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, 1 í Grímsey,
og 1 á Álptanesi í Gullbringusýslu. Nú eru
slysavarnadeildir í öllum hreppum V.-Skapta-
fellssýslu, öllum hreppum Rangárvallasýslu, 9
hreppum í Árnessýslu og 8 hreppum Mýra- og
VÍKINGUR