Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 29
ir að vísu oftast komið að tilætluðum notum,
því að menn hafa brugðist drengilega við og
látið eitthvað af hendi rakna.
Það er að sjálfsögðu ekki að lasta þá hjálp-
fýsi, er kemur fram í slíkum söfnunum, en
óneitanlega væri það viðkunnanlegra, að
þjóðfélagið sjálft sæi aðstandendum þeirra
manna, er láta lífið á þann hátt, oft á bezta
aldri, í þágu þess, fyrir viðunandi lífeyri, því
varla verður þeirrar hugsunar varist, að með
þessari aðferð sé verið að gera aðstandendur
sjómannanna að hálfgerðum beiningamönn-
um.
Þegar þess er nú jafnframt gætt, að
áminnstar fjársafnanir fara sjaldnast fram
nema um fráfall heillar skipshafnar sé að
ræða, en hinsvegar kemur það oft fyi'ir, að
fyrirvinnu einnar eða fleiri fjölskyldna missi
við, án þess að nokkuð sé að gert, þó að sjálf-
sögðu sé í slíkum tilfellum um jafnmikið tjón
að ræða fyrir þá, sem misst hafa.
Með sjóðsstofnun þeirri, er tillagan ræðir
um, er bent á leið til nokkurra úrbóta í þessu
efni.
2. Fundurinn tekur undir og ítrekar þá á-
skorun Farmanna- og fiskimannasambands ís-
lands til Alþingis og ríkisstjórnar, um að
stofnaður verði sérstakur vitasjóður, sem í
renni öll hin lögboðnu vitagjöld, enda verði
ríkissjóði gert að skyldu að greiða inn í vita-
sjóð þau vitagjöld síðastliðinna 15 ára, sem
.ekki hafa farið til nýbygginga og viðhalds á
vitum samkvæmt gildandi lögum.
Fundurinn telur sjálfsagt að leitað verði
álits Farmanna- og fiskimannasambands ís-
lands um framkvæmdir vitasjóðs og þá eink-
anlega um byggingu nýrra vita.
Þrír íslenzkir sjómenn
farasí me3 norsfu sfipi
Talið er víst, að norska flutningaskipið
,,Bisp“ frá Haugasundi, hafi farizt. Hefir ekk-
ert til skipsins spurst síðan það fór frá Eng-
landi 20. janúar síðastliðinn áleiðis til Noregs.
Á skipinu voru þrír íslendingar, tveir frá
Vestmannaeyjum og einn frá Steinsmýri í
Meðallandi. Réðu þeir sig allir á „Bisp“ hinn
12. nóvember s.l., en skipið fór þá frá Vest-
mannaeyjum áleiðis til útlanda.
íslendingarnir voru þessir:
Guðmundur Eiríksson frá Dvergasteini í
Vestmannaeyjum, 20 ára gamall, einhleypur,
en átti foreldra á lífi í Vestmannaeyjum.
Þórarinn S. Thorlacius Magnússon frá Vest-
mannaeyjum, 33 ára gamall, kvæntur og átti
tvö ung börn.
Bisp afí fara frá Langeyri við Álftafjörð vestra.
Haraldur Bjarnfreðsson frá Efri Steinsmýri
í Meðallandi, 22 ára gamall, einhleypur, en
foreldrar hans eru á lífi á Efri Steinsmýri.
29
VIKINGUR