Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Blaðsíða 30
Einar GuSmundsson timburmaður á m.s.
,,Esja“ er fæddur í Skáleyjum á Breiðafirði 29.
febrúar 1888. Er hann því 52 ára nú, enda þótt
hann ekki eigi afmælisdag nema fjórða hvert
ár.
Ólst Einar upp á Breiðafirði til 16 ára ald-
urs, byrjaði að stunda þar sjóróðra er hann
var 12 ára og einnig á Snæfellsnesi. Var hann
ýmist á opnum skipum eða þilskipum.
Árið 1911 byrjaði Einar siglingar á stærri
skipum og var þá fyrst eitt ár sem viðvaning-
ur á g.s. „VeMra“ í strandferðum hér við land,
réðist því næst í millilandasiglingar á g.s.
„Mjölni“, eign Thorefélagsins. Fluttist hann
nokkru síðar til Austfjarða og settist að á
Reyðarfirði og hefir hann verið búsettur þar
síðan. Stundaði hann sjóróðra þaðan, þar til
1922 um vorið, er hann réðist timburmaður á
g.s. „Sterling“, en það var stutt gaman
skemmtilegt fyrir hann. Var hann þar aðeins
eina nótt, því að næsta dag strandaði „Ster_
ling“ í svarta þoku fyrir utan Brimnes á Seyð-
isfirði. Hefði mörgum þótt það snubbótt sjó-
ferð, en Einar segir ekki margt um hana, því
hann er orðvar og vandur að virðingu sinni.
Árið 1923 réðist Einar svo til sama starfa á
gömlu ,,Esju“ og var þar æ síðan, þar til hún
var seld og ávallt við góðan orðstýr, en síðan
að nýja „Esja“ kom, hefir hann haft þar
samskonar starf á hendi.
Einar er greindur og reglusamur í hvívetna
og því öðrum til fyrirmyndar. Hann er manna
fróðastur um margt og víðlesinn, les al.lt það,
er hann nær í, þegar honum gefst tóm til og
á því margar bækur og sumar góðar. Einar er
af öllum samstarfsmönnum jafn vel látinn,
bæði yfir- og undirmönnum. Allir samverka-
menn hans og Sjómannablaðið Víkingur árna
því ungmenninu, með silfurhærurnar, allra
heilla í tilefni af þrettánda afmælisdeginum.
Á. S.
Sigurður
jónsson
skipstjóri og
útgerðarmaður
í Görðum
75 ára.
Hinn 11. þ. m. átti Sigurður Jónsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður í Görðum á Seltjarn.
arnesi 75 ára afmæli. — Sigurður er fæddur
á Seltjarnarnesi og hefir alið þar — og á sj5n-
um — allan sinn aldur. Hann byrjaði að stunda
sjó fyrir alvöru 14 ára gamall og varð for-
maður á 4 manna fari þegar hann var 18 ára.
Eftir að hann lauk skipstjóraprófi var hann
lengi skipstjóri á kútterum, bæði sem aðrir áttu
og sem hann átti sjálfur.
Sigurður í Görðum hefir verið — og er enn
— mikill atorku og dugnaðarmaður. í þau
rúm 60 ár, sem liðin eru síðan hann byrjaði
sjómennsku, hefir hann jafnan fengizt við sjó-
sókn og útgerð í einhverri mynd, auk þess sem
hann hefir fengizt við jarðrækt og landbúnað.
Sjómannablaðið Víkingur óskar honum til
hamingju með það, sem af er og árnar honum
allra heilla í framtíðinni.
VÍKINGUR
30