Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 5
ofaná yrði að hafa hann hér í höfuöstað lands- ins, sem þegar var orðinn, og átti enn greini- legar eftir að verða miðstöð siglinga okkar og fiskveiða. Hér voru skilyrðin einnig bezt að öðru leyti, hér var aðal verzlunar- og mennta- setur landsins, og auk þess hefir Reykjavík ætíð legið betur við samgöngum en flestir aðrir stað- ir á landinu. Ilér er ekki tími til að rekja nema í stórum dráttum aðdragandann að stofnun skólans — enda er í ráði að það verði gert betur á þessu ári —, en eins og nærri má geta, lágu til þess sérstakar ástæður, að mönnum var orðin ljós þörfin fyrir slíkan skóla. Útvegur landsmanna, sem fram á seinni hluta síðustu aldar hafði að mestu verið rekinn á opnum bátum, var nú að breytast í samræmi við kröfur tímans, þilskipa- útvegurinn var að hefjast fyrir alvöru, og þörf- in fyrir menn með sjófræðikunnátlu var orðin aðkallandi. Nokkur þilskipaútgerð hafði að vísu verið rekin hér á landi mestan hluta síðustu aldar, fyrst hinn mikli útvegur Bjarna riddara Sívert- sen á fyrsta fjórðungi aldarinnar, en á Iians skipum munu nær eingöngu hafa verið útlendir skipstjórar. Þá höfðu frá því um 1840 gengið nokkur smærri þilskip til þorsk- og hákarla- veiða frá Vestur- og Norður-landi, og munu flestir formenn þeirra hafa verið ólærðir með öllu, að minnsta kosti fyrst í stað. Ennfremur gekk héðan við og við nokkuð af útlendum skip- um, sem komu upp með vörur að vorinu, stund- uðu fiskveiðar yfir sumartímann, og sigldu aft- ur út með vörur á haustin. Skipshafnir þessara skipa voru auðvitað útlendar, en á meðan þau stunduðu fiskveiðarnar, voru ráðnir á þau ís- lenzkir menn, sem sumir hverjir fóru með þeim utan og héldu áfram siglingum. • Einstöku menn lærðu sjómannafræði ytra, komu heim aftur, og gerðust skipstjórar á hin- um nýbyrjaða þilskipaútvegi okkar, og ekki var eins dæmi að þeir kenndu aftur efnilegum mönn- um það, sem nauðsynlegt þótti til að geta stjórn- að fiskiskipum hér við land. Á þennan hátt myndaðist smám saman vísir að þeirri stétt, sem eftir stofnun stýrimannaskólans efldist svo að kröftum og fjölmenni, að úr hennar hópi komu margir af mestu athafnamönnum lands- ins á því viðreisnartímabili, sem nú fór í hönd. Þegar sögð er saga sjómannafræðslunnar hér á landi, verður ekki gengið fram hjá þeim, sem ruddu veginn að því marki, sem náð var með stofnun stýrimannaskólans. Hinn fyrsti og einn hinn mikilvirkasti af þeim mönnum, sem feng- ust við kennslu í sjómannafræði á þeim tíma, var Torfi Halldórsson, skipstjóri og síðar bóndi á Flateyri við Önundarfjörð. Torfi sigldi utan til náms árið 1851, lauk prófi árið 1853 og byrjaði síðan kennslu í sjómannafræði á Isa- firði og á Flateyri, og sóttu menn skóla hans af öllu Vesturlandi, en einnig frá Norðurlandi og jafnvel frá Austfjörðum. Lærisveinar hans skifta áreiðanlega mörgum tugum, og verður sennilega að telja hann brautryðjanda okkar í þessu starfi. Svo einkennilega vill til, að bæði norðanlands og sunnan, eru það menn, sem ekki voru sjálfir sjómenn — nema að því leyti, sem hver sá, er við sjóinn býr, hlýtur að hafa af honum nokkur kynni — sem eru forgöngumenn að því, að tekin verði upp kennsla í sjómannafræði í þessum landshlutum. Á Norðurlandi er það merkisbónd- inn Einar Ásmundsson í Nesi við Eyjafjörð, sem um 1850—’60 byrjar sjálfur að nema sjó- mannafræði af bókum, líklega tilsagnarlaust, semur síðan kennslubók og tekur pilta í kennslu heim til sín að Nesi. Hjá honum lærir Jón Lofts- son, ættaður úr Fljótum, sem síðan fer utan til frekara náms, og heldur að því loknu skóla um tíma á Norðurlandi. Hér á Suðurlandi byrjar sjómannafræðsla ekki svo neinu nemi, fyr en eftir 1870. Að vísu sést af gömlum blöðum, að árið 1847 auglýsir Magnús Waage, búsettur í Vogum á Reykjanesi, að hann taki menn til kennslu í sjómannafræði. Magnús hafði lært utanlands, og sezt síðan að hér heima, en hvort nokkrir hafi sinnt þessu til- boði vita menn nú ekki, og þá heldur ekki hvort nokkrir hafi lært hjá honum fyr eða síðar. Á 7. tug aldarinnar byrjar hinn mikli at- hafnamaður, Geir Zoega, útgerð sína hér í bæ, fyrst með þilskipinu „Fanny“, sem hann kaupir i félagi við tvo aðra menn árið 1866, og nokkru síðar með „Reykjavíkinni", sem margir kann- ast við. Þessi skip voru fyrirrennarar hinnar miklu þilskipaútgerðar hér við Faxaflóa, sem 5 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.