Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Blaðsíða 21
afl þeirra hluta er gera skal, — hvernig bezt væri að útvega, á heppilegastan hátt, fé til byggingarinnar. Til mála gæti komið, að kaupa hús, til að byrja með, ef heppilegur staður fengist. Hætt er við, að misjafnar skoðanir komi frarn um stærð og tilhögun hússins. Ég vil ríða á vaðið og láta mína skoðun í ljós með sem fæst- um orðum um það atriði. Mér finnst, að húsið þyrfti ekki að vera stórt, en fallegt. í því ætti að vera herbergi helst fyrir hvert félag, sem þau notuðu fyrir stjórnar- og nefndarfundi og geymdu í bækur sínar og muni. Þar ætti að hafa aðsetur blað sjómannastéttar- innar og Slysavarnarfélagið. Gera ætti ráð fyrir að félögin kæmu sér upp bókasafni, og ætti að vera herbergi fyrir það. Til mála gæti komið að komið yrði á fót upplýsingaskrifstofu fyrir sjó- menn úti um land, og ætti vel við að slík skrif- stofa ætti þar aðsetur. Þar að auki ætti að vera salir, sem nota mætti til allra almennra funda fyrir félögin. I sambandi við þá sali ætti að vera veitingar, og útbúnaður fyrir þær. Önnur herbergi gætu náttúrlega komið til greina, ef það virtist heppilegt fyrir rekstur hússins. Staðurinn, sem húsið stæði á, ætti að vera sem næst höfninni. Um fjármálin vil ég sem minnst tala, bæði af þvi, eins og ég gat um fyrr, að ég hefi ekki nógu mikla fjármálaþekkingu til þess, og það er allt af viðkvæmt mál, sem þarf að fara mjúkum höndum um. Þó vil ég benda á, að lítt gerlegt væri að fara að byggja hús með mjög stuttum bankalánum. Best væri, ef hægt væri, að safna fé til bygging- arinnar, og eiga húsið, með sem minnstri skuld, er það væri byggt. En ég býst við, að mönnum finndist þessi leið nokkuð seinfarin. Þá er að fá lán til lengri tíma, og ef til vill með lítilli eða engri afborgun fyrstu árin. Þessi leið er möguleg, að minnsta kosti með nokkuð af húsverðinu. Mörg félög eiga sjóði, sem þau skerða ekki höfuðstólinn af. Væri ekki nóg trygging að ávaxta höfuðstólinn í byggingunni? Ein leiðin er hlutafjársöfnun innan sjálfra fé- laganna og meðal einstaklinga þeirra. Nú ber svo vel í veiði, að einmitt þessari stétt, (sjó- mannastéttinni) berast miklir peningar. Mundu þeir ekki fáanlegir til að ávaxta eitthvað af fé sínu í húsinu? Ég læt hér staðar numið, þó benda mætti sjálf- sagt á fleiri leiðir og það að líkindum betri en þessar. Áður en ég lík máli mínu vil ég minna sjó- menn vora á það, að það sómir illa fyrir stéttina að eiga ekkert hús til að starfa í hér í borginni, þegar smáfélög geta byggt og keypt hús, upp um fjöll og fyrnindi. Það er eitt af menningarmálum stéttarinnar að eignast hús, sem ekki má dragast miklu leng- ur að byggt verði, ef hún vill halda verðskuld- uðu áliti. Sjómenn! Sýnið nú samhug og byggið hús fyrir félög ykkar á næstu árum. CAPITANA Magnús Andrésson, útgerðarmaður, hefir nýlega fest kaup á þessu skipi í New Bedford í Bandaríkjun- um. Skipið kom hingað 26. apríl s. 1. Capitana er þrímöstruð skonn- orta, 277 srnál. brúttó, með 250 hest- afla Diesel-hjálparvél, og er mjög áþekk „Huginn", sem keyptur var til landsins í síðustu styrjöld. Eins og sést á myndinni, er afar mikil sigling á skipinu, cnda hefir það þungan blýkjöl í lcjölfestu. Hug- mynd Magnúsar er að láta breyta því og nota það til fiskflutnings. Skipið var upphaflega smíðað sem listisneklcja, og hefir sjáanlega ekk- ert verið til þess sparað. 21 V f KTN G‘U‘R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.